Kanna hvort blöðruþang nýtist gegn lífsstílssjúkdómum Svavar Hávarðsson skrifar 18. mars 2017 07:00 Handskera þarf blöðruþangið og gæta vel að því að taka ekki of mikið á hverjum stað. Mynd/Matís
Þekkingarfyrirtækið Matís og Rannsóknarstofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum hafa fengið samþykki Vísindasiðanefndar fyrir rannsókn á áhrifum blöðruþangs á bólguþætti hjá of þungum, fullorðnum einstaklingum. Eins verður kannað hvort blöðruþang hafi áhrif á blóðsykur og blóðfitu – og efnin geti nýst í baráttunni við þekkta lífsstílssjúkdóma. Hörður G. Kristinsson, rannsókna- og nýsköpunarstjóri Matís, útskýrir að svokallaðir bólguþættir séu undirliggjandi orsök í mörgum sjúkdómum – hjarta- og æðasjúkdómum og liðagigt, svo dæmi séu tekin. „Við erum þó að skoða fleira, til dæmis andoxunarvirkni og hvort þangið geti jafnvel haft áhrif á þá þætti sem valda sykursýki. Við erum því að gera víðtæka skimun á þessu efni sem búið er að þróa. Rannsóknin er til þess að sjá hvernig efnið virkar við inntöku hjá mönnum, en mikið liggur þegar fyrir úr tilraunum sem lofa mjög góðu,“ segir Hörður. Hráefnið blöðruþang, sem einnig er nefnt bóluþang, vex eingöngu í fjörum og er víða algengt í Norður-Evrópu – ekki síst hér á Íslandi. „Þetta var eitthvað nýtt hér fyrr á öldum en hefur verið vannýtt í samanburði við sumar aðrar þangtegundir. Það skýrist af því að það er ekki sérstaklega bragðgott þegar það er borðað eitt og sér. Það sem við erum að gera er að draga út virku efnin í þanginu sem hægt er að neyta beint eða blanda í önnur matvæli,“ segir Hörður og bætir því við að þangið er nýtt annars staðar í heiminum en í litlum mæli – og ekkert hér á Íslandi í dag.En hvað ef þessi tilraun eða rannsókn skilar góðum árangri?„Við erum að líta til fæðubótarefna og markaðar fyrir þau. Þá væri hugmyndin sú að setja á fót framleiðslu hérna á Íslandi og framleiða meðal annars úr þessu þangi, og þá fyrir erlendan markað. Ef vel gengur myndum við reyna að búa til nýjan iðnað úr ónýttu hráefni,“ segir Hörður en allt þangið er, og yrði, handskorið og þess gætt að hvert svæði sé vel hvílt á milli. Helstu matarholurnar eru kannski Breiðafjörður en mikið er af þessu þangi við Faxaflóa og Reykjanes – og reyndar í fjörum um allt land.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Erlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Sjá meira