Mikil atvinnutækifæri sögð fólgin í meiraprófsréttindum Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 17. maí 2016 07:00 Mikill skortur er á bílstjórum með meirapróf vegna mikils fjölda ferðamanna á landinu. vísir/Anton Brink
Tvöfalt fleiri fengu réttindi til að keyra rútu árið 2015 en fimm árum áður og rétt tæplega tvöfalt fleiri fengu réttindi til að keyra leigubíl. Einnig eru æ fleiri sem fá leyfi til að keyra lítinn hópbíl. Aukning hefur verið í öllum flokkum meiraprófs fyrir utan eftirvagnapróf.Guðbrandur Bogason, ökukennari í Ökuskólanum Mjódd Fréttablaðið/Guðbrandur Bogason, ökukennari í Ökuskólanum Mjódd, segir að algjör sprenging hafi orðið á fjölda nemenda sem taka rútupróf síðustu fimm ár. Þessi mikla aukning tengist fleiri ferðamönnum á landinu. Mikill skortur á bílstjórum með meirapróf í kjölfar fleiri ferðamanna og rútuferða hafi orðið til þess að fólk ákveði að bæta við sig réttindum eða jafnvel breyta alveg um starfsvettvang. „Fólk sér tækifæri og ákveður að grípa gæsina. Fólk er á mjög mismunandi aldri en margir eru í kringum fimmtugt að bæta við sig þessum réttindum,“ segir Guðbrandur. „Það er líka veruleg fjölgun á leigubílstjórum. Þá eru menn að nota helgarnar til að keyra bílana í aukavinnu og kroppa túristana.“Arnar Már Ottósson, nemi í ökuskóla Fréttablaðið/VilhelmFréttir voru sagðar af því í síðasta mánuði að Strætó þyrfti að flytja inn vinnuafl í sumarafleysingar. Gert var ráð fyrir að minnsta kosti 25 manna hópi til landsins til að keyra vagnana. Guðbrandur segist vita til þess að mörg ferðaþjónustufyrirtæki eigi erfitt með að manna rúturnar á sumrin. Margir bregði á það ráð að fá hingað erlent vinnuafl og Íslendingar með meirapróf séu eftirsóttir.Af skrifstofunni upp í jeppa „Svona kemst ég í tengingu við náttúruna og umhverfið okkar. Það er spennandi að vera þátttakandi í uppbyggingu ferðaþjónustunnar,“ segir Arnar Már Ottósson, sem er að taka meirapróf hjá ökuskólanum. Hann vinnur á daginn í tæknigeiranum við skrifborðið en ætlar sér að taka að sér jeppaferðir um helgar í sumar. „Það er verið að tala um að allir séu að græða á þessum bransa. Ég er ekki að fara í þetta til að græða. Ég er í raun að ná mér í nýja lífsreynslu.“Arnar segir að það komi honum mest á óvart hve fjölbreyttur hópur sé í ökuréttindanámi og hversu ítarlegt námið sé. „Þetta snýst ekki bara um ökutækið. Þetta snýst um að vera góður atvinnubílstjóri, taka ábyrgð, kunna skyndihjálp og að bregðast við atvikum í umferðinni og svo er mikilvægt að hugsa vel um ökutækið, þrífa það og bjóða upp á góða þjónustu.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 17. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Sjá meira