Ráðherra segir fullgildingu líklega í ágúst Svavar Hávarðsson skrifar skrifar 11. júní 2016 07:00 Lilja Alfreðsdóttir
Utanríkisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, lýsti því yfir í þingræðu 2. júní að stefnt sé að fullgildingu Íslands á Parísarsamkomulaginu í ágúst. Noregur stefnir að fullgildingu í þessum mánuði. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í gær tillögu sína um að ESB fullgildi samkomulagið með hraði. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, bendir á að til þessa er Ungverjaland eina aðildarríki ESB sem hefur fullgilt samkomulagið en Frakkland mun væntanlega ganga frá fullgildingu í þessum mánuði.Árni FinnssonÍ fréttatilkynningu Náttúruverndarsamtakanna segir að yfirlýsing ESB sé til marks um að sambandið vilji fyrir engan mun missa frumkvæðið við framfylgd Parísarsamkomulagsins vegna þeirra örðugleika sem felast í að öll aðildarríkin 28 verða fyrst að fullgilda það heima fyrir áður en Evrópuþingið getur gert það. Til að Parísarsamkomulagið öðlist lagagildi þurfa 55 ríki, sem losa 55% af heimslosun gróðurhúsalofttegunda, að staðfesta það. Nú virðist sem það geti orðið fyrir næstu áramót þar sem bæði Kína og Indland hafa nú lýst yfir vilja til þess, auk Bandaríkjanna og Brasilíu, segir í tilkynningunni. Þar segir jafnframt að Evrópusambandið – sem stendur fyrir um 10% af heimslosuninni – hafi lengi stært sig af að vera leiðandi afl í loftslagsmálum innan Sameinuðu þjóðanna. „Fari svo að samkomulagið verði að alþjóðalögum áður en sambandið nær að klára staðfestingarferlið yrði það álitshnekkir fyrir ESB. Að lágmarki verður Evrópusambandið að klára fullgildingarferlið snemma árs 2017 en það ár hefjast viðræður um hvernig aðildarríki Parísarsamkomulagsins geti hert róðurinn og staðið við sameiginlega skuldbindingu sína um að halda hlýnun andrúmsloftsins innan við 2°C og takmarka hana helst við 1,5°C.“Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu 11. júní 2016
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Sjá meira