Vill heimild til að hlera opinbera starfsmenn sem grunaðir eru um mútuþægni sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 24. maí 2016 13:25 Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. vísir/pjetur
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur þörf á að heimild fáist til þess að hlera opinbera starfsmenn sem grunaðir eru um mútuþægni í starfi. Hún vill að ákvæði þess efnis verði bætt inn í lög um skilyrði fyrir beitingu símahlustunar.Þetta kemur fram í umsögn Sigríðar við frumvarpi Ólafar Nordal innanríkisráðherra um breytingu á lögum um meðferð sakamála og skilyrði fyrir beitingu símahlustunar, en RÚV greindi fyrst frá. Sigríður segist vilja að ákvæði um mútuþægni opinberra starfsmanna verði bætt inn í upptalningu lagaákvæða í frumvarpinu. Sigríður vísar til tilmæla vinnuhóps OECD um erlend mútubrot, en innanríkisráðuneytið í samvinnu við utanríkisráðuneytið útbjó upplýsingablað um erlend mútubrot í kjölfar tilmæla hópsins. Í frumvarpinu segir að þau skilyrði verði að vera fyrir hendi svo að gripið verði til símhlustana að rannsókn beinist að broti sem varðað geti að lögum sex ára fangelsi og að almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess. Enn fremur er gert ráð fyrir að heimilt verði að beita símhlustunum ef rannsókn beinist til að mynda að skipulagðri brotastarfsemi, frelsissviptingu, brot gegn nálgunarbanni, vændisstarfsemi og fleiru. Sigríður segir fyrirkomulagið í fruvmarpinu, að skipa lögmann til að gæta hagsmuna þess sem hleraður er fyrir dómi, geta haft í för með sér að málsmeðferðin verði töluvert tímafrekari en nú er, enda verði lögmaðurinn að geta sinnt sínu verkefni á fullægjandi hátt. Þá segir hún að ætla megi að það verði erfitt fyrir dómarann að ganga úr skugga um það með skjótum hætti að lögmaður hafi engar tengingar við þann sem hleraður er, sem geri hann vanhæfan til starfans. Ekki sé hægt að líta fram hjá fámenni íslensku þjóðarinnar. Sigríður segir jafnframt að fyrirkomulaginu fylgi nokkur kostnaður í réttarvörslukerfinu, sem í dag líði fyrir fjárskort.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira