Henry velur fimm leikmenn Leicester í úrval fjögurra efstu liðanna Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. febrúar 2016 16:00 Robert Huth, Kante og Mahrez sem allir sjást á myndinni eru í liði Thierry Henry. vísir/getty
Fimm leikmenn Leicester eru í úrvalsliði Thierry Henry, fyrrverandi leikmanns Arsenal og núverandi sparkspekingi Sky Sports, sem hann valdi úr fjórum efstu liðum ensku úrvalsdeildarinnar. Þegar 25 umferðum er lokið í úrvalsdeildinni eru Refirnir afar óvænt á toppnum og með fimm stiga forskot á Tottenham sem er í öðru sæti með 48 stig. Arsenal er í þriðja sæti með jafn mörg stig og erkifjendur sínir í Norður-Lundúnum og Manchester City, sem tapaði 3-1 fyrir Leicester um síðustu helgi, er í fjórða sætinu með 47 stig. Henry mátti velja ellefu manna byrjunarlið úr leikmannahópum þessara liða og valdi Petr Cech, markvörð Arsenal, í markið. Hector Bellerín, bakvörður Arsenal, Robert Huth, miðvörður Leicester, Laurent Koscielny, miðvörður Arsenal, og Christian Füchse, bakvörður Leicester, skipa svo varnarlínuna. Huth hefur gengið í endurnýjun lífdaga hjá Leicester og skoraði tvívegis gegn City um síðustu helgi. Bellerín hefur neglt hægri bakvarðarstöðuna hjá Arsenal og kaup Leicester á Füchs eru ein þau bestu á tímabilinu. N'Golo Kante, sem eins og fleiri hefur slegið í gegn hjá Leicester, er varnarsinnaður miðjumaður og með honum á miðjunni eru Riayd Mahrez og Dele Alli hjá Tottenham. Henry stillir upp í tígulmiðju og er með stoðsendingkóng deildarinnar, Mesut Özil, fremstan á miðjunni fyrir aftan markahrókana Sergio Agüero hjá Manchester City og Jamie Vardy hjá Leicester. Nánari útskýringar á hverju vali fyrir sig má lesa hér.Úrvalslið Thierry Henry úr fjórum efstu liðunum.mynd/sky sports
Enski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Fleiri fréttir Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Sjá meira