Armenar áhugasamir um íslenska krimma Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. maí 2016 07:00 Uppselt var þegar Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir ræddu íslenskar glæpasögur, einkum sín eigin verk, við breska lesendur. „
Fyrir okkur er mikill heiður að vera boðið að vera með viðburð í þessari búð. Þetta er þar sem allir vilja vera með bækurnar sínar í sölu og svo er mikill heiður að þeir vilji setja upp þennan atburð sérstaklega fyrir okkur,“ segir Ragnar Jónasson rithöfundur. Hann og Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur lögðu leið sína til Lundúna í liðinni viku. Þar áttu þau samtal við fullan sal af gestum um íslenskar glæpasögur og sín eigin ritverk í bókabúð Waterstones-keðjunnar á Piccadilly í London, sem er ein stærsta bókabúð í heiminum. Ragnar hefur samið um útgáfu á bókum sinum í ellefu löndum og segir Ragnar að þeirra mest framandi sé ef til vill Armenía. „Það var einhver maður sem vildi hafa samband við mig og hann virtist hafa mikinn áhuga á íslenskum glæpasögum og hafði gefið út áður Arnald og Yrsu, að ég held. Þetta er sennilegast óvenjulegasta landið og mest framandi landið,“ segir Ragnar. Hann segir þó að stærsti markaðurinn í ár sé Frakklandsmarkaðurinn. Þar hefur bók hans, Snjóblinda, verið gefin út í 21 þúsund eintökum og segir Ragnar að viðtökurnar hafi verið mjög góðar. Um leið og Ragnar var úti til að hitta fólk í bókabúð Waterstones hitti hann fulltrúa sjónvarpsmyndaframleiðendanna On the Corner sem hafa keypt kvikmyndaréttinn á bókum hans og vinna nú að gerð framhaldsþátta. „Þeir sögðu að það væri mjög góður gangur í þessu ferli. Þeir eru að vinna í því núna að finna handristhöfund. Þeir eru búnir að sigta út einhvern hóp sem þeir eru að velja hinn eina rétta úr,“ segir Ragnar. On the Corner er ungt framleiðslufyrirtæki, ef til vill þekktast fyrir að hafa unnið til Óskarsverðlauna fyrir heimildarmynd um Amy Winehouse. Ragnar segir að framleiðendurnir ætli að skoða þann möguleika að taka þættina upp á Íslandi, en handritshöfundurinn verði líklegast ekki íslenskur. „Ég veit ekki til þess að þeir séu að skoða íslensk nöfn.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. maí.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Sjá meira