Býður í bíltúr og þiggur sögu í staðinn Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 10. október 2016 20:30
Árni Aðalbjörnsson, betur þekktur sem bakarinn í Gamla bakarínu, keypti fornbíl fyrir fimmtán árum, af tegundinni Ford, sem framleiddur var árið 1930. Bíllinn er keyrður yfir milljón kílómetra en dugar þó vel í stutta bíltúra sem Árni býður eldri borgurum Ísafjarðarbæjar í. „Ég hafði ekki eins gaman af því að vera einn á honum. Svo ég byrjaði á því að bjóða eldri borgurum Ísafjarðar í bíltúr. Þau segja mér sögu í staðinn frá því þau voru ung. Elsti sem hefur farið í bílinn var 103 ára og svo er fólk alveg niður í sjötugt. Ég hef farið með mjög marga, sjötíu til áttatíu manns í bíltúr á þessum bíl.“ Árni fer með fólkið um bæinn og vinsælt er að fara fyrir framan húsið sem það ólst upp í. Þar stillir það sér upp fyrir framan bílinn og Árni tekur mynd af þeim sem hann gefur þeim svo. En hann á líka sjálfur eintak af hverjum farþega og hefur rammað myndirnar inn – og hluta af þeim má sjá uppi á vegg í Gamla bakarínu. Elsti farþeginn sem hefur farið í bíltúr með Árna er Torfhildur Torfadóttir. Hún var 103 ára. „Ég sótti hana upp á Hlíð og svo þegar hún kom út og ég sagði henni að við færum í bíltúr á elsta bíl á Vestfjörðum og hún væri elsti Íslendingurinn. Þá sagði hún að bílarnir hafi verið fallegri í gamladaga, að hljóðið væri fallegt og lyktin góð. „Maður yngist bara upp við þetta,“ sagði hún.“ Árna finnst gaman að heyra sögur fólksins sem hefur byggt upp landið. Um lífið og tilveruna í oft erfiðum aðstæðum og við erfið lífsskilyrði. Sumar sögur eru sorglegar og aðrar fullar af hlýjum minningum. En hvað ætlar hann að gera við allar þessar sögur? „Þær eru bara inni í höfðinu á mér og hafa verið þar. Svo hugsa ég mér þegar ég verð fullorðinn maður þá punkta ég þetta niður.“Er þetta er saga vestfirðinga? „Já, þetta eru hetjurnar sem hafa byggt upp bæinn.“
Mest lesið Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Innlent Vöknuðu með rottu upp í rúmi Innlent Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Innlent „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Erlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Erlent Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Innlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Fleiri fréttir Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Kanna starfshætti, verklag og aðstæður Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots Sjá meira