Innlent

Sigrún Anna nýr skólastjóri á Kjalarnesi

Atli Ísleifsson skrifar
Klébergsskóli á Kjalarnesi.
Klébergsskóli á Kjalarnesi. Mynd/Reykjavíkurborg
Sigrún Anna Ólafsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við sameinaðan leik-, grunn- og tónlistarskóla á Kjalarnesi.

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að Sigrún Anna hafi lokið MA gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ og hafi víðtæka reynslu af skólastarfi.

„Hún hefur starfað sem umsjónarkennari, náms- og starfsráðgjafi, deildarstjóri og staðgengill skólastjóra við Klébergsskóla. 

Sigrún Anna tekur við starfinu 1. september,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×