Skiptir máli að gefa öllum tækifæri Heiðar Lind Hansson skrifar 19. september 2016 06:45 Jóna María Ásmundsdóttir ásamt dóttur sinni Birtu Möller Óladóttir. Vísir/Eyþór. „
Birta er alveg í skýjunum og hefur labbað um alla helgina hér heima með auglýsinguna og sýnt öllum,“ segir Jóna María Ásmundsdóttir um sex ára dóttur sína, Birtu Möller, sem sat fyrir í auglýsingu Hagkaupa sem birtist sl. föstudag í Fréttablaðinu. Auglýsingin hefur vakið nokkra athygli en þar má sjá Birtu með bros á vör í rauðum snjógalla. „Hún er ógurlega stolt,“ bætir Jóna María við.Myndin sem notuð var í auglýsingunni.Mynd/Hagkaup.Ástæðan fyrir athyglinni er ekki síst sú að Birta er með þroskahömlunina Downs-heilkenni en fátítt er hér á landi að fólk með slíka hömlun sitji fyrir í auglýsingum. Jóna María var ekki í minnsta vafa um að leyfa dóttur sinni að taka þátt þegar Hagkaup spurði hana, en hún er starfsmaður fyrirtækisins. „Hagkaup tók skref í rétta átt með þessu, því þarna var fyrirtækið að víkja frá svokölluðum staðalímyndum sem ráða för í hinum stóra auglýsingaheimi.“ Hún kveðst hafa fundið fyrir sterkum og jákvæðum viðbrögðum við auglýsingunni um helgina, m.a. á Facebook. „Sumir segja hversu frábært það er að notuð séu módel sem eru með þroskafrávik. Aðrir sjá þó bara káta krakka úti í fallegri náttúru og eru kannski ekki mikið að pæla í hvernig þeir líta út.“ Jóna María telur að það geti skipt sköpum fyrir framtíð einstaklinga í sömu sporum og dóttir hennar er, að fjölbreytileiki sé áberandi. „Fólk með þroskahömlum hefur væntingar til lífsins eins og aðrir. Þau vilja gera það sem þau dreymir um, t.d. til að vinna við það sem þau hafa áhuga á, eignast maka, stunda íþróttir og allt það sem þau hafa ástríðu fyrir. Þau geta alveg lært hluti eins og allir aðrir, en þurfa að fá tækifæri og stuðning til að gera það,“ segir hún og vonast til að auglýsingin virki sem hvatning fyrir aðra. „Ég skora á auglýsingastofur og fyrirtæki að gefa fólki tækifæri til að leika eða að sitja fyrir í auglýsingum hvort sem viðkomandi er með þroskafrávik eða aðrar fatlanir. Það skiptir máli að gefa öllum tækifæri því það gerir lífið svo miklu skemmtilegra,“ segir Jóna María.Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Sjá meira