Alþingi samþykkti fullgildingu Parísarsamningsins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. september 2016 20:13 Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir fullgildingu samningsins fyrr í þessum mánuði. vísir/stefán
Alþingi samþykkti í dag að heimila fullgildingu Parísarsamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál með öllum greiddum atkvæðum. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að Ísland sé þar með á meðal fyrstu 55 ríkjanna sem þurfa að fullgilda samninginn til að hann taki gildi. Sigrún Magnúsdóttir umhverfis-og auðlindaráðherra undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd fyrr á þessu ári en hann skuldbindur ríki heims til að vinna saman að því að bregðast við loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Fyrr í þessum mánuði mælti svo Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra fyrir fullgildingu samningsins á Alþingi. „Samningurinn markar sannarlega tímamót. Hann gefur okkur von um árangur í loftslagsmálum því í París tókst að finna hina pólitísku sátt sem lengi hafði vantað,“ er haft eftir Sigrúnu í tilkynningu ráðuneytisins. Þá segir Lilja að það sé ánægjulegt að Ísland skuli vera í hópi þeirra ríkja sem staðfesta fullgildingu sína á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna nú í vikunni. „Ég finn sterkt fyrir áhuga þjóða heims á Parísarsamningnum og hvað loftlagsmálin eru mikilvæg öllum þeim sem láta sig varða velferð í heiminum. Það er því sérstakt ánægjuefni að Ísland hafi lagt sitt lóð á vogarskálarnar," segir Lilja. Samningurinn öðlast gildi þegar að minnsta kosti 55 ríki með 55 prósent af heimslosun hafa fullgilt hann. Nú þegar hafa 28 ríki sem bera ábyrgð á tæplega 40 prósent losunar heimsins fullgilt samninginn, þeirra á meðal Bandaríkin og Kína. „Aðildarríki Parísarsamningsins setja sér markmið um minnkun losunar, svonefnd landsákvörðuð framlög, og myndar Parísarsamningurinn lagalegan ramma utan um þessar skuldbindingar. Ísland sendi inn sín markmið þann 30. júní 2015 þar sem stefnt er að 40% minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda árið 2030, miðað við 1990, í samstarfi við aðildarríki ESB og Noreg. Endanlegar skuldbindingar Íslands ákvarðast af samningi þessara þriggja aðila. Stefnt er að því að þeirri vinnu ljúki á næsta ári,“ segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Tengdar fréttir Bandaríkin og Kína fullgilda Parísarsamninginn um loftslagsmál Fréttirnar eru taldar þrýsta verulega á önnur ríki að fullgilda samninginn. 3. september 2016 10:36 Mest lesið Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Sjá meira
Bandaríkin og Kína fullgilda Parísarsamninginn um loftslagsmál Fréttirnar eru taldar þrýsta verulega á önnur ríki að fullgilda samninginn. 3. september 2016 10:36