Forgangsstýring sögð bylting 19. september 2016 19:15
Ný forgangsstýring umferðarljósa er bylting fyrir neyðarbíla og eykur öryggi almennings segir slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Hann og borgarstjóri prufukeyrðu nýja búnaðinn í morgun. Í sumar voru gerðar breytingar á umferðarljósum í Reykjavík til að hægt væri að stýra þeim með sérstökum búnaði. Búnaðurinn var formlega ræstur í morgun þegar sjúkrabíl og slökkvibíl var ekið frá Skógarhlíð um Bústaðaveg og Snorrabraut í forgangsakstri þar sem bílarnir gátu komist leiðar sinnar á auðveldan hátt vegna þess að þeir gátu framkallað græn ljós á leið sinni niður Snorrabraut. Mikilvægt þykir að hafa stýringu á þeirri leið til að greiða fyrir umferð neyðarbíla að Landspítala. Aukið öryggi Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir búnaðinn vera byltingu fyrir þá sem sinna forgangsakstri. „Þetta er öryggi fyrir vegfarendur, öryggi fyrir okkur og bætt þjónusta.“Segir Jón Viðar. Búnaðurinn er nú eingöngu stilltur við ljós á þeirri leið sem ekin var í morgun en Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir að líklegt megi telja að stýringin verði tengd við öll ljós höfuðborgarsvæðisins áður en langt um líður. Einnig fyrir strætisvagna „Við erum með þessu að nota tæknina til að gefa neyðarflutningum fyrsta forgang. En svo nýtist þetta líka fyrir forgang strætisvagna og almenningssamgöngur. Þetta eru margar flugur í einu höggi.“ Ljósastýring strætisvagnanna verður þó ekki með alveg sama hætti og hjá viðbragðsaðilunum heldur mun græna ljósið loga lengur nálgist vagninn gatnamót. „Ég held að við séum að stíga fyrsta skrefið af mörgum inn í framtíðina hvað þetta snertir. Bæði til að stýra umferðarflæðinu svo það verði eins gott og hægt er og svo líka fyrir þessar sérstöku þarfir, sem neyðarflutningarnir eru auðvitað.“ Segir Dagur.
Mest lesið Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Guðmundarlundur á bólakafi Innlent Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Innlent „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Innlent Fleiri fréttir Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Krefjast þess að framkvæmdir við Kaffistofuna verði stöðvaðar Bein útsending: Kynna áform um endurreisn Grindavíkur Guðmundarlundur á bólakafi Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Sömdu um starfslok bæjarstjóra Akraness Muni ekki fallast á tilmæli til barnafjölskyldna í Grindavík „Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Valkyrjurnar boða aðgerðir til að takast á við verðbólguna Nýtt framboð í Reykjavík á elleftu stundu Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Fjölmiðlahugtakið sagt útþynnt og gagnslaust Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu „Að mínu mati lýsir þessi dómur ekki réttlæti“ Helmingur hefur áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja Kom fyrir hlerunarbúnaði en var sýknaður: „Úrskurður græjaður núna hviss bamm búmm“ Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Sjá meira
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent