Jafnrétti á vinnustað verk sem þarf að henda sér í Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 25. maí 2016 11:30 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Ragnheiðar Elínar Árnadóttur ráðherra. Vísir/Aðsend „
Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu. Ég vil taka undir það að þetta er bara verk að vinna og það er ekkert annað en að henda sér í verkið. Baráttumálið mitt núna er jafnlaunastefnan. Það er ótrúlegt að geta fengið verðlaun fyrir jafnréttismál þegar launamunurinn er 3 prósent,“ sagði Birna Einarsdóttir, bankastjóri íslandsbanka, en Íslandsbanki hlaut í dag Hvatningarverðlaun jafnréttismála. Verðlaunin voru veitt á ráðstefnunni „Er pláss fyrir jafnrétti í nýsköpun?“ sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík í dag. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti verðlaunin en það eru Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð.Ragnheiður Elín tók undir með fyrirlesurum á ráðstefnunni sem nefndu að jafnrétti væri verkefni til að ráðast í.Vísir/Anton BrinkÍslandsbanki hefur fengið sérstaka viðurkenningu sem fyrirtæki með launamun undir 3 prósentum fá og gerði Birna það að umtalsefni sínu að nauðsynlegt væri að breyta því viðvarandi ástandi að það ríkti launamunur milli kynjanna á vinnumarkaði. Þá vísaði hún í erindi Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, fyrr á ráðstefnunni sem sagði jafnrétti á vinnustaðnum vera verkefni sem þyrfti að takast á við og leysa en OR hefur hlotið sömu verðlaun og fengið mikið lof fyrir störf sín í jafnréttismálum. Íslandsbanki unnið með FAK og UAK Íslandsbanki var einróma valinn af dómnefnd sem taldi bankann hafa sett jafnréttismál á oddinn með afdráttarlausum hætti og jafnframt hvatt önnur til að gera það sama. Ragnheiður Elín ávarpaði ráðstefnuna og las upp úr umsögn dómnefndarinnar um Íslandsbanka. En dómnefndin taldi bankann hafa tryggt að þættir bæði í innra og ytra skipulagi sínu stuðli að jafnrétti, skýrt sé að kynin njóti sambærilegs framgangs í starfi, mannauðsstefna bankans aðgengileg og mælanlegur árangur birtur opinberlega. „Fyrirtækið vill vera fyrirmynd í jafnréttismálum,“ sagði Ragnheiður Elín og nefndi að jafnréttisstefna þess sé kynnt nýjum stjórnendum strax í upphaf. Þá hefur bankinn unnið með Félagi kvenna í atvinnulífinu, FKA, verið aðalstuðningsaðili félagsins og haldið með því frumkvöðlakeppni. Þá er Íslandsbanki einn styrktaraðila Ungra athafnakvenna.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira