Sér tormerki á sambúð á hjúkrunarheimilum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. maí 2016 06:00 Um 42 prósent karla og 28 prósent kvenna flytja inn á hjúkrunarheimili fyrir 80 ára aldur að sögn Unnar V. Ingólfsdóttur. Myndin er af Hrafnistu. Fréttblaðið/pjétur
Framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar segir frumvarp til laga, sem ætlað er að tryggja eldri borgurum áframhaldandi sambúð þótt annar makinn þurfi að dvelja á stofnun, vekja upp ótal spurningar. Um er að ræða frumvarp frá þremur þingmönnum Vinstri grænna sem vilja festa í lög að sá sem dvelur til langframa á stofnun fyrir aldraða eigi kost á því vera samvistum við maka sinn þar. „Sá réttur er ekki tryggður nú og því geta öldruð hjón eða sambýlisfólk þurft að slíta samvistum gegn vilja sínum þegar svo er komið fyrir öðru þeirra að langtímadvöl á stofnun fyrir aldraða er nauðsynleg. Aðskilnaðurinn getur reynst þeim og aðstandendum þungbær og því mikið hagsmunamál aldraðra að tryggja rétt sinn til áframhaldandi sambúðar,“ segir í greinargerð með frumvarpinu. Unnur V. Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar, segir í umsögn, sem bæjarráðið þar samþykkti, að frumvarpið feli í sér mikilvægt mannréttindasjónarmið. „En leiðin sem lögð er til með búsetu þess maka/sambúðaraðila sem hressari er á hjúkrunarheimili vekur óhjákvæmilega ótal spurningar um hversu heppilegt slíkt form er,“ segir Unnur sem einnig kveður aðlögunartímann fram til 1. janúar 2018 vera of stuttan vegna fjölmargra hindrana sem ryðja þurfi úr vegi. Unnur segir viðvarandi skort á hjúkrunarrýmum og rekstrarvanda hjúkrunarheimila ekki gefa tilefni til breytinganna sem lagðar eru til nema unnið sé á þeim vanda. „Fyrirkomulag búsetu maka á hjúkrunarheimili þarf einnig að vera með þeim hætti að tryggt sé að það íþyngi ekki þeim sem ekki er í þörf fyrir þjónustu hjúkrunarheimilisins. Tryggt þarf einnig að vera að hann hafi í einhver hús að venda falli veikari makinn frá en sé ekki tilneyddur til að búa áfram á hjúkrunarheimili,“ segir í umsögn Unnar og þar með Mosfellsbæjar. Þá bendir Unnur á að koma þurfi í veg fyrir að sá makinn sem betur er á sig kominn njóti þjónustu umfram sínar þarfir því það geti skert færni viðkomandi, stuðlað að félagslegri einangrun og staðið í vegi fyrir því að þeir sem séu í þörf fyrir þjónustu njóti hennar. Fleiri karlar en konur flytji inn á hjúkrunarheimili fyrir 80 ára aldur. „Það eru því meiri líkur á því að konur séu í hópi þeirra einstaklinga sem velja að flytja með maka sínum á hjúkrunarheimili ef frumvarpið yrði að lögum,“ segir Unnur. Af reynslu af tilraunaverkefni á Hrafnistu í Kópavogi hafi stjórnendur ekki talið fyrirkomulagið heppilegt. „Ástæða var talin til að hafa áhyggjur af maka sem flytti inn á heimilið án þess að vera í þörf fyrir svo viðamikla umönnun sem þar er í boði. Beindust þær að því að makinn fengi ekki næga hvíld og að aðstæður drægju úr færni hans og stuðlaði að félagslegri einangrun,“ segir í umsögninni.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Segist hafa áhyggjur af stöðunni í Evrópu Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Sjá meira