Leikstjóri vill viðhalda draumi mömmu sinnar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. maí 2016 07:00 Brynja Benediktsdóttir lést árið 2008 og eiginmaður hennar Erlingur Gíslason fyrr á þessu ári. Saman létu þau eftir sig miklar húseignir á Laufásvegi 22. vísir/Anton Brink „
Ég bíð spenntur eftir svörum embættismannanna og fagfólksins, hvort þetta sé mögulegt,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri sem óskar eftir heimild til að skipta húseignum foreldra sinna heitinna í tvo hluta. Bræðurnir Benedikt og Friðrik Erlingssynir eru erfingjar húsanna á Laufásvegi 22 sem leikarahjónin Erlingur Gíslason og Brynja Benediktsdóttir heitin létu eftir sig. Um er að ræða 252 fermetra einbýlishús og 227 fermetra vinnustofu. Benedikt segir í bréfi til borgaryfirvalda að þeir bræður þurfi að selja eignina en ef fallist verði á að skipta lóðinni í tvennt opnist fyrir hann sá möguleiki að taka vinnustofuna, sem nefnt er Skemmtihúsið, sem sinn arfshluta. „Ég ræð ekki við það einn að taka þetta allt,“ segir Benedikt sem vill fá leyfi til að vera með íbúð á neðri hæð vinnustofunnar. „Ég vildi láta gamlan draum móður minnar um skemmtihúsið rætast þannig að ég gæti verið þarna með vinnustofu listamanns. Konan mín, Charlotte, gæti verið með námskeið og ég ímynda mér að vera þarna með vinnustofu og aðstöðu sem kvikmyndaskáld og leikstjóri og leikari,“ útskýrir Benedikt.Benedikt Erlingsson leikstjóri og leikari. Fréttablaðið/ValliLagt er til í beiðni Benedikts að lóðinni verði einfaldlega skipt eftir miðri verönd sem tengir húsin tvö. Hann segir að þótt enginn hafi enn óskað eftir kaupum á eigninni – enda sé hún ekki komin á sölu –verði það sjálfsagt helst fjársterkir aðilar á borð við gistiheimili, fasteignafélög eða fjárfestingafélög sem falist eftir íbúðarhúsinu. „Þannig að í pólitík borgarinnar gæti þetta þjónað þeim hagsmunum að það yrði fjölbreyttari byggð í miðbænum,“ bendir Benedikt á sem jákvæða hliðarverkun þess að hann fái ósk sína uppfyllta. „Ég er að bíða eftir svörum, það geta ekki farið fram skipti milli okkar bræðra fyrr en þetta kemst á hreint.“ Eins og er hafa meðlimir hljómsveitarinnar Sigur Rósar aðstöðu í Skemmtihúsinu. Benedikt segir það ekki hugmyndina að vera þar með reglulegt sýningarhald gangi áætlun hans eftir. „Við ætlum ekki að vera með einhvern massívan leikhúsrekstur.“
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira