Hótaði því að börnin ælust upp móðurlaus Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. september 2016 19:05 Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 23.september. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur gert karlmanni að sæta nálgunarbanni í sex mánuði gagnvart barnsmóður sinni þannig honum verði bannað að koma á eða í námunda við heimili hennar, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana með nokkru móti. Dómurinn taldi rökstuddan grun um að maðurinn hafi átt í alvarlegum hótunum við konuna og sýnt af sér ógnandi hegðun gagnvart henni og börnum þeirra. Er hann meðal annars sagður hafa ítrekað reynt að komast inn á heimili konunnar og legið á dyrabjöllunni svo klukkustundunum skipti. Hafi hann hótað konunni lífláti og nauðgunum og sagðist konan óttast manninn mjög. Þá sagði konan í skýrslutöku lögreglu að maðurinn væri að hóta því að börnin hennar myndu alast upp móðurlaus og að maðurinn myndi taka ungt barn þeirra ef hann fengi ekki að sjá hann. Maðurinn hafi jafnframt gengið í skrokk á sér áður sem og tvítugum syni hennar. Samkvæmt úrskurði dómsins barst síðasta tilkynning 18. september um að maðurinn hefði ráðist á konuna og börn hennar. Maðurinn hafi verið sjáanlega ölvaður þegar lögreglu bar að garði og er hann sagður hafa reynt að taka eldri barn þeirra, tæplega tveggja ára dreng, upp úr barnakerru. Þegar konan náði barninu af manninum er maðurinn sagður hafa ýtt konunni þannig að hún datt, með barnið í fanginu. Maðurinn neitar sök í málinu. Honum var, með ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 19. september, gert að sæta nálgunarbanni en lögregla taldi rökstuddan grun um refsiverð afbrot gagnvart konunni, einkum alvarlegar hótanir, ógnandi hegðan og ærumeiðingar.
Mest lesið Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Sjá meira