Genin ráða hvenær lax snýr aftur Svavar Hávarðsson skrifar 14. júní 2016 09:00 Um sjötíu prósent af veiddum stórlaxi sumarið 2015 fengu lífgjöf frá veiðimönnum. Mynd/NASF
Komið hefur í ljós að það er arfgengt hvort laxar dvelja eitt eða tvö ár í sjó. Þetta undirstrikar mikilvægi þeirrar aðgerðar að sleppa stórlaxi, sem hvatt hefur verið til á undanförnum árum. Upplýsingar um þessa mismunandi arfgerð laxa koma fram í grein sem birtist fyrir skömmu í hinu virta vísindariti Nature, og vitnað er til af Guðna Guðbergssyni, fiskifræðingi hjá Veiðimálastofnun, í nýrri lokaskýrslu um lax- og silungsveiðina sumarið 2015. Í Nature er sagt frá rannsóknum sem sýndu að fundist hefur gen í laxi sem gegnir veigamiklu hlutverki í að ákvarða hvort Atlantshafslax gengur til hrygningar sem smálax, og þá eftir eitt ár í sjó eða stórlax eftir tvö ár eða lengur. „Fækkun laxa með tveggja ára sjávardvöl (stórlaxa) stóð nærri samfellt frá miðjum níunda áratug síðustu aldar fram til 2000 og veldur sú fæð stórlaxa verulegum áhyggjum. Talið er að meginorsökin fyrir minnkandi stórlaxagengd á undanförnum tveimur áratugum sé vegna hækkaðrar dánartölu laxa á öðru ári í sjó,“ skrifar Guðni.Guðni GuðbergssonEins og kunnugt er hafa Landssambönd veiðifélaga og stangveiðimanna auk Veiðimálastofnunar beint þeim eindregnu tilmælum til veiðimanna að þeir sleppi stórlaxi í stangveiði. Veiðimálastofnun hefur þá skorað á veiðiréttarhafa og stjórnvöld að grípa til friðunar á stórlaxi í íslenskum veiðiám á meðan þetta ástand varir. Þetta hefur borið árangur. Laxi hefur fjölgað og hlutfall þeirra laxa sem veiddir eru á stöng og sleppt aftur hefur hækkað. Sumarið 2015 var 42,8% smálaxa af villtum uppruna sleppt aftur en 70% stórlaxa, segir í skýrslu Veiðimálastofnunar. Fréttir undanfarinna daga af upphafi laxveiða í Norðurá, Blöndu og Þverá/Kjarará hafa allar verið á einn veg. Mikið af stórlaxi hefur veiðst í upphafi veiðitímans og vöktu niðurstöðutölur opnunarhollanna athygli, enda um metveiði að ræða. Um helgina var það sama uppi í Þverá/Kjarará í Borgarfirði þar sem tugir laxa komu á land. Einar Sigfússon, sölustjóri í Norðurá, sagði í viðtali við Stöð 2 að hann hefði mikla trú á því að upphaf veiðitímans, og fjöldi stórlaxa, væri í beinu sambandi við það átak veiðimanna og yfirvalda að sleppa veiddum stórlaxi. Til þess ber einnig að líta að veiðin sumarið 2015 var sú fjórða mesta sem sagan geymir. Þetta uppfyllir vonir veiðimanna vegna sterkra gangna smálaxa í fyrrasumar, og svo virðist sem aðstæður í sjónum hafi verið góðar um skeið – enda lax að ganga sem er afar vel haldinn.Stórveiðisumarstaðfest: -Sumarið 2015 var stangveiði á laxi í ám á Íslandi alls 71.708 laxar. -Af þeim var 28.120 (39,2%) sleppt aftur. -Af veiddum löxum voru 61.576 laxar með eins árs sjávardvöl (smálaxar) (85,8%). -Af veiddum löxum voru 10.132 (14,2%) laxar með tveggja ára sjávardvöl eða lengri (stórlaxar). -Skráð stangveiði 2015 var sú fjórða mesta sem skráð hefur verið hér á landi og rúmlega tvöfalt meiri en var á árinu 2014 þegar 33.598 laxar veiddust. -Veiðin var um 76% yfir meðalveiði áranna 1974 til 2014 (40.684).Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Fleiri fréttir Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Sjá meira