Tvö innbrot til rannsóknar hjá lögreglu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. nóvember 2016 17:22 Eigandi hússins fann síma mannsins í rúmi sínu. Vísir/Getty
Í gær var brotist inn í tvö heimahús á höfuðborgarsvæðinu. Annað innbrotanna var í tvíbýlishús í Kópavogi að degi til, en hitt í einbýlishús í Mosfellsbæ fyrripart kvölds, en bæði húsin voru mannlaus þegar þjófarnir létu til skarar skríða. Málin eru til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en hún rannsakar einnig nokkur innbrot í einbýlishús í umdæminu sem voru framin að kvöld- og næturlagi um síðustu helgi. Lögregla telur ekki ósennilegt að einhver hafi séð til þjófanna og því ítrekar hún að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Þá vill lögreglan minna á að betra er að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira