Slitnar upp úr samstarfi Jafnaðarmanna og Fjallabyggðarlistans í Fjallabyggð Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2016 15:53 Frá Siglufirði. Vísir/Gísli Berg
Slitnað hefur verið upp úr meirihlutasamstarfi Jafnaðarmanna og Fjallabyggðarlistans í sveitarstjórn Fjallabyggðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Steinunni Maríu Sveinsdóttur, oddviti Jafnaðarmanna, og segir að upp úr slitnaði í kjölfar „trúnaðarbrests sem varð á milli oddvita Fjallabyggðarlistans og annarra bæjarfulltrúa meirihlutans“. Kristinn Kristjánsson er oddviti Fjallabyggðarlistans, en ekki hefur náðst í hann. Þá segir að í framhaldi af þessari niðurstöðu hafi verið teknar upp viðræður milli Jafnaðarmanna og Sjálfstæðisflokks um meirihlutasamstarf. Fyrir liggur málefnasamningur sem bíður samþykktar flokkanna á næstu dögum. Ekki hefur náðst í Steinunni Maríu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segist í samtali við Vísi ekki vita hvaða áhrif þetta hafi á hans stöðu, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Tilkynningin í heild sinni:Yfirlýsing frá Jafnaðarmönnum í FjallabyggðÍ kjölfar trúnaðarbrests sem varð á milli oddvita Fjallabyggðarlistans og annarra bæjarfulltrúa meirihlutans hefur nú slitnað upp úr meirihlutasamstarfi Jafnaðarmanna í Fjallabyggð og Fjallabyggðarlistans.Jafnaðarmenn harma að til þessa hafi mátt koma en þakka því góða fólki sem stendur að Fjallabyggðarlistanum fyrir gott og árangursríkt samstarf.Í framhaldi af þessari niðurstöðu voru teknar upp viðræður milli Jafnaðarmanna og Sjálfstæðisflokks um meirihlutasamstarf. Fyrir liggur málefnasamningur sem bíður samþykktar flokkanna á næstu dögum.Steinunn María Sveinsdóttir, oddviti
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Safna fyrir Steinunni sem lést við barnsburð á Landspítalanum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Sjá meira