Innlent

Guðmundur fannst látinn

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fjöldi björgunarsveitarmanna leituðu Guðmundar.
Fjöldi björgunarsveitarmanna leituðu Guðmundar. Vísir
Guðmundur L. Sverrisson, sem leitað hefur verið að frá því í gærmorgun, fannst látinn í flæðarmálinu í Örlygshöfn rétt fyrir hádegi. Rannsókn á tildrögum andlátsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og mun hún ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

„Lögreglan á Vestfjörðum þakkar þeim fjölmörgu björgunarsveitarmönnum sem komu að leitinni. Þá ber að þakka atvinnurekendum þessara sjálfboðaliða. Að leitinni komu leitarhópar frá Norðurlandi, Vestfjörðum, Vesturlandi, Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu auk landsstjórnar Landsbjargar, sem og starfsmenn Landhelgisgæslunnar,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×