Riða greinist á búi í Skagafirði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. september 2016 09:37 Bændur eru komnir af fjalli og eru að reka fé til rétta. vísir/stefán
Riðuveiki hefur verið staðfest á búi á Skagafirði. Þetta er fjórða tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á Norðurlandi vestra síðan í febrúar 2015. Þá hafði ekki greinst riða á landinu síðan árið 2010. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða að því er kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Þar kemur fram að í síðustu viku hafi bóndinn í Brautarholti í Skagafirði fengið grun um riðuveiki í kind og hafði samband við héraðsdýralækni. Kindinni var lógað og sýni sent til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti á miðvikudag í þessari viku að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða. Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á ellefu búum á undanförnum 20 árum og þar af á fjórum búum í nágrenni Varmahlíðar, þannig að segja má að um þekkt riðusvæði sé að ræða. Á þessu búi var síðast skorið niður vegna riðu árið 1987. Á bænum er nú um 290 fullorðið fé. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011, 2012 og 2013. Sérfræðingar Matvælastofnunar segja riðuveikina því á undanhaldi en leggja áherslu á að ekki megi sofna á verðinum. „Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna.“ Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Sjá meira