Fagmennskan í Indlandi kom Eiði á óvart Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. september 2016 16:15 Eiður Smári Guðjohnsen. vísir/getty
Næsta ævintýri Eiðs Smára Guðjohnsen verður áhugavert en hann er að fara að leika með FC Pune City í indverska boltanum. Indversku ofurdeildin er aðeins tveggja ára gömul og tímabilið mjög stutt eða rétt rúmir tveir mánuðir. Deildin hefst um næstu mánaðarmót. „Ég hef nú ekki getað fylgst mikið með deildinni frá Evrópu en miðað við æfingarnar þá ná indversku og erlendu leikmennirnir vel saman. Nú snýst þetta um finna jafnvægið fyrir tímabilið,“ segir Eiður Smári í viðtali við The Field. Eldri stjörnur hafa reynt fyrir sér í þessari deild en Eiður segist ekki hafa talað við þá og spurt út í hvernig væri að spila þarna. Hann sé einfaldlega ekki í sambandi við þá leikmenn. Honum líst þó vel á það sem hann hefur séð. „Það kom mér þægilega á óvart hvað það er mikil fagmennska í gangi. Það er það mikilvægasta að mínu mati. Æfingaaðstaðan var frábær. Hvað varðar indversku leikmennina þá get ég ekki tekið einhvern einn úr en ég verð að segja að þeir búa yfir miklum gæðum. Þeir eru að leggja hart að sér og alltaf til í að bæta sig.“ Eiður Smári talar einnig um EM-ævintýri Íslands í viðtalinu en á hann einhver ráð fyrir indverska knattspyrnu? „Það hefur tekið tíma að þróa svona gott landslið. Hvort okkar kerfi sé fullkomið veit enginn en það virkaði mjög vel fyrir okkur. Indland verður að finna þá leið sem hentar þeim best,“ segir Eiður en er auðveldara að móta lið í minna landi en stóru eins og Indlandi? „Það er erfitt að segja. Það er ekki mikil fjarlægð á Íslandi og auðvelt að setja upp sterka deild. Krakkarnir þurfa ekki að fara langt til þess að komast í fótbolta. Indland er risastórt og þarf að finna hvaða leið sé hentar með þennan mikla mannfjölda.“
Fótbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Fleiri fréttir Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Sjá meira