Handtekinn með rafbyssu í Reykjavík Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. ágúst 2016 12:02 Samkvæmt lögreglu á Akureyri er þetta með rólegustu verslunarmannahelgum í manna minnum. Vísir/Pjetur
Það fór tvennum sögum af verkefnum lögreglu um landið í nótt. Víða um land höfðu þeir nóg að gera en á öðrum stöðum var nokkuð rólegt. Í Vestmannaeyjum voru um fimmtánþúsund manns samankomnir í Herjólfsdal þegar mest lét. Telja menn að hátíðin í ár hafi verið sú næstfjölmennasta frá upphafi. Framan af var nóttin róleg en þegar líða tók á hana var meira að gera. Fimm gistu fangageymslur vegna mismunandi brota. Samráðsfundur verður hjá viðbragðsaðilum Þjóðhátíðar nú eftir hádegi og skýrist þá betur hvað fór þar fram. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að nokkuð hafi verið um akstur undir áhrifum áfengis, vímuefna eða án ökuréttinda. Þá var maður handtekinn, skömmu fyrir fjögur í nótt, með rafstuðbyssu. Honum var sleppt eftir skýrslutöku. Snemma í morgun var tilkynnt um líkamsárás í Reykjavík. Einn maður var handtekinn og gistir hann fangageymslur sem stendur. Þá var tilkynnt um eignaspjöll og innbrot í borginni. Lögreglan á Suðurlandi þurfti að hafa afskipti af fólki sem gisti á tjaldsvæðinu á Flúðum. Nokkuð var um ölvun og læti þar. Alls gistu þrír fangageymslur á Selfossi. Á Ísafirði fór Evrópumeistaramótið í mýrarbolta fram. Þar í bæ var ball og brenna í gær. Að sögn varðstjóra fór allt nokkuð vel fram. Nokkuð var um ölvun en engar kærur hafa komið inn á borð lögreglunnar. Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur en sá sem hraðast ók mældist á 138 kílómetra hraða á klukkustund. Svipaða sögu var að segja frá Akureyri og Neskaupsstað. Þar fóru fram hátíðirnar Sumarleikarnir og Neistaflug. Að sögn lögreglunnar á Akureyri átti ekkert sér stað þar í bæ nema hávaði frá skemmtanahaldi. Frá Neskaupstað fengust þær upplýsingar að þar hefði verið örlítill erill vegna ölvunar en engar kærur eða slagsmál átt sér stað. 35 ökumenn hefðu verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Sjá meira