Innlent

Nokkuð um smáþjófnaði í höfuðborginni í gær

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Verslunargatan Laugavegurinn. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Verslunargatan Laugavegurinn. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Reykjavíkurborg
Nóttin var róleg á höfuðborgarsvæðinu að sögn lögreglu en helst dró til tíðinda rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi þegar maður með hníf var handtekinn eftir að tilkynnt var um að hann væri að stela í verslun í miðborginni. Hann var í annarlegu ástandi. Maðurinn var vistaður í fangaklefa.

Þá var tilkynnt um annan þjófnað nokkrum tímum áður eða klukkan fimm úr áfengisverslun. Stuttu síðar var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í austurborginni. Einni og hálfri klukkustund síðar var tilkynnt um að úlpu ásamt síma hafi verið stolið úr búningsklefa í sundlaug.

Það var því nokkuð um smáþjófnaði í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×