Innlent

Átján ára handtekinn í annarlegu ástandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Vísir/Pjetur
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær, ef marka má dagbók hennar sem send var á fjölmiðla í morgunsárið.

Upp úr klukkan eitt í nótt var átján ára piltur í annarlegu ástandi handtekinn við Skólavörðustíg eftir að hafa brotið rúður í tveimur húsum þar nærri. Hann var vistaður í fangageymslu þar sem honum var gert að sofa úr sér vímuna og Barnavernd var gert viðvart.

Þá var nokkuð um ölvunarakstur í nótt. Á Sæbraut var ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, og á Reykjanesbraut sömuleiðis en sá reyndist vera á röngum númerum og númer því klippt af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×