Innlent

Tæpum þremur milljörðum úthlutað til ferðamannastaða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Dynjandi er meðal þeirra staða sem hlutu hve hæstan styrk frá Framvæmdasjóði ferðamannastaða.
Dynjandi er meðal þeirra staða sem hlutu hve hæstan styrk frá Framvæmdasjóði ferðamannastaða.
Alls verður 647 milljónum króna úthlutað til sextíu og sex verkefna hringinn í kringum landið úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á árinu.

Hæstu einstöku styrkirnir nema þrjátíu milljónum og voru veittir til verkefna við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss. Fimmtíu og einni milljón er úthlutað sérstaklega af ráðherra til brýnna verkefna vegna öryggis á ferðamannastöðum að tillögu Stjórnstöðvar ferðamála.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fréttablaðið/GVA
Frá 2012-2015 veitti Framkvæmdasjóður ferðamannastaða styrki sem nema 2,2 milljörðum króna. Sjóðurinn hefur greitt út 1,4 milljarða króna. Enn þá er töluvert af fjármunum bundið í sjóðnum vegna verkefna sem annaðhvort eru ekki hafin eða er ekki lokið, eða sem nemur 829 milljónum króna. Þar af standa 425 milljónir eftir vegna úthlutana á árinu 2015.

Helstu ástæður sem gefnar eru fyrir töfum eru skipulagsmál, tímafrek hönnunarvinna, deilur milli landeigenda, skortur á mótframlagi og skortur á verktökum eða mannafla til að vinna verkin.

„Þessa urðum við áskynja fyrir ári þegar við vorum í fjárlagagerðinni að meta þörfina fyrir þetta ár. Þá sáum við að eftir voru 1.200 milljónir í sjóðnum sem höfðu ekki farið í vinnu í rauninni. Í kjölfarið breyttum við reglum sjóðsins og þessi úthlutun núna er sú fyrsta sem tekur mið af nýjum reglum,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

„Það voru nokkrar breytingar einmitt miðaðar að því að bæta eftirfylgnina og tryggja að fjármunum sé veitt til verkefna sem eru tilbúin. Þegar búið er að skipuleggja og hanna verkefnin og þau komin á framkvæmdastig. Það er hluti af þessum 800 milljónum að fólk var að sækja um í verkefni sem var óraunhæft að gætu hafist. Þau sem hafa fengið styrk úr sjóðnum til verkefna sem er annað hvort ekki lokið eða ekki farin af stað fá ekki frekari styrki fyrr en þau eru búin að sjá fram á að ljúka verkefnunum. Ef sýnt er að verkefni séu ekki að fara af stað munum við afturkalla þá styrki," segir Ragnheiður Elín. 

Fréttin birtist fyrst Fréttablaðinu 24. mars




Fleiri fréttir

Sjá meira


×