Innlent

Talinn hafa ráðist á kærustu sína

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/KolbeinnT
Lögreglunni barst í nótt tilkynning um að berbrjósta kona hefði brotið rúðu á veitingastað við Ingólfsstræti. Þegar lögregluþjóna bar að garði var par í annarlegu ástandi á vettvangi og er maðurinn grunaður um líkamsárás gagnvart konunni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Konan reyndi að hlaupa frá lögreglunni en var handtekin. Þau voru vistuð í fangageymslu og verður rætt við þau þegar ástand þeirra lagast.

Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir í nótt, grunaðir um ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×