Styttist óðum í Welbeck Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. febrúar 2016 20:15 Welbeck spilaði klukkutíma með varaliði Arsenal fyrr í vikunni. vísir/getty
Svo gæti farið að Danny Welbeck yrði í leikmannahópi Arsenal á sunnudaginn þegar liðið mætir Leicester City í toppslag í ensku úrvalsdeildinni. Welbeck hefur ekki spilað mínútu á tímabilinu vegna erfiðra hnémeiðsla. Framherjinn er hins vegar allur að koma til og lék í klukkutíma með varaliði Arsenal fyrr í vikunni. „Það styttist óðum í Welbeck. Hann er í góðu líkamlegu formi en þarf bara að komast í leikform,“ sagði Wenger á blaðamannafundi fyrir leikinn mikilvæga gegn Leicester. Arsenal er fimm stigum á eftir toppliðinu og þarf helst að vinna leikinn á sunnudaginn til að missa Leicester ekki of langt fram úr sér. Wenger gaf það einnig í skyn að Per Mertesacker yrði ekki í byrjunarliðinu gegn Leicester sem er með mjög hraða leikmenn framarlega á vellinum. „Per Mertesacker er frábær leiðtogi en ég er með þrjá miðverði og verð að vega og meta hverja ég á að velja út frá frammistöðu, leikformi sem og andstæðingnum og styrkleikum hans,“ sagði Wenger. Arsenal er aðeins annað tveggja liða sem hefur tekist að vinna Leicester í úrvalsdeildinni í vetur. Skytturnar báru sigurorð af Refunum á útivelli 26. september í fyrra. Leikar fóru 2-5 en Alexis Sánchez skoraði þrennu fyrir Arsenal í leiknum.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira