Nicky Butt fær nýtt starf hjá Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2016 09:15 Nicky Butt á bekknum með þeim Ryan Giggs, Paul Scholes og Phil Neville. Vísir/Getty
Nicky Butt hefur fengið krefjandi og ábyrgðarmikið starf hjá Manchester United en eigendur United hafa ráðið hann sem yfirmann knattspyrnuakademíu félagsins. Nicky Butt er 41 árs gamall og úr hinum fræga 1992-árgangi Manchester United sem tók yfir United-liðið á sínum tíma. Butt spilaði alls 387 leiki fyrir félagið á árunum 1992 til 2004. Hann snéri aftur til Manchester United árið 2012 og hefur síðan þjálfað bæði varaliðið og 19 ára liðið. „Nicky hefur hefðir og arfleið félagsins í blóðinu. Það lá í augum uppi að ráða hann," sagði varastjórnarformaðurinn Ed Woodward. „Þetta er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til að stýra knattspyrnuakademíu félagsins og innræta réttu gildin og rétta hugarfarið meðal framtíðar kynslóða af leikmönnum Manchester United," sagði Nicky Butt við BBC. Manchester United hefur stokkað upp í unglingastarfi félagsins og hófst það þegar Brian McClair hætti sem yfirmaður knattspyrnuakademíunnar í júní 2015. United segir þó að það sé ekki hægt að bera starf Butt saman við það sem Brian McClair sinnti vegna þess að félagið sé búið að endurskipuleggja allt starfið hjá sér. Ed Woodward er á því að Butt komi inn með "ástríðu, orku og reynslu" í starfið eins og hann orðaði það sjálfur. Undanfarin fjögur ár hafa fimmtán leikmenn úr unglingastarfi Manchester United spilað samtals 173 leiki með aðalliðinu. „Klúbburinn er mjög stoltur af þeirri tölfræði," sagði Ed Woodward. Nicky Butt varð sex sinnum enskur meistari með Manchester United og hann vann einnig Meistaradeildina og spilaði 39 landsleiki fyrir England. Hann var aðstoðarmaður Ryan Giggs þegar Giggs tók við stjórastöðunni í lok 2013-14 tímabilsins eftir að David Moyes var rekinn.
Enski boltinn Mest lesið Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti Mátti ekki hlaupa maraþonhlaup með barnið sitt á sér Sport Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ Handbolti Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Enski boltinn Fleiri fréttir Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Sjá meira