Ræða það að gera miklar breytingar á ensku bikarkeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2016 11:45 Arsenal hefur unnið enska bikarinn tvö undanfarin ár. Vísir/Getty
Enska blaðið Sun slær því upp í morgun að enska knattspyrnusambandið sé að ræða framtíð ensku bikarkeppninnar við æðstu menn hjá ensku úrvalsdeildinni. Markmið viðræðnanna er að fækka bikarleikjum og minnka álagið á bestu liðin á Englandi. Það hefur verið mikið rætt og skrifað um leikjaálagið í enska boltanum sem þykir meira en í öðrum Evrópulöndum og auðvitað vegur þar þungt að leikmenn fá ekkert frí yfir jól og áramót. Í hinum löndunum er vanalega vetrarfrí sem gefur leikmönnum gott tækifæri til að hlaða batteríin.The Sun segir frá því að hugmyndir séu uppi um að hætta við að endurtaka leiki í bikarnum verði jafntefli og gera frekar út um þá strax í framlengingu eða vítakeppni. Þetta myndi gerbreyta ensku bikarkeppninni og væri áfall fyrir minni liðin sem græða oft mikinn pening á þessum endurteknu leikjum á móti stærri klúbbum. Stóru klúbbarnir eru hinsvegar ekki spenntir fyrir að spila einum leik meira á tímabili þar sem meira en nóg er af leikjum. Þeir fagna því örugglega slíkum breytingum. Undanúrslit enska deildarbikarsins verða væntanlega bara einn leikur en ekki tveir leikir, heima og að heiman, eins og þetta er í dag. Möguleiki á að búa til vetrarfrí í enska boltanum gæti einnig verið fyrir hendi verði enski bikarinn leikinn í miðri viku í stað þess að vera spilaður um helgi. Fyrstu umferðirnar færu þá fram á helgum en um leið og úrvalsdeildarliðin koma inn í keppnina þá verði spilað í miðri viku. Þetta gæti skapað pláss fyrir vetrarfrí í upphafi nýs árs. Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa miklar áhyggjur af því að þetta mikla álag á leikmenn þýðir að bestu leikmennirnir vilji frekar spila annarsstaðar í Evrópu. Breytinga er því þörf.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira