Arnar: Mótherjar Liverpool skynja ótta liðsins í föstum leikatriðum Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. janúar 2016 16:00 „
Það er karakter í þessu liði. Það náði í þetta stig á móti West Brom um daginn þar sem menn fögnuðu á Anfield og þeir voru svolítið gagnrýndir fyrir það. Þeir sýndu aftur karakter á móti Arsenal um daginn og núna komu þeir með aðra endurkomu.“ Þetta sagði Hjörvar Hafliðason, Messustjóri, í Messunni á mánudagskvöldið um endurkomusigur Liverpool á móti Norwich, 5-4. Sigur Liverpool var sterkur í ljósi þess að liðið var undir nær allan leikinn, en varnarleikurinn er þó mikill hausverkur á Anfield. „Þetta er karakter og Liverpool er með læti og setur pressu, en Norwich hjálpar til með slökum varnarleik. Varnarmaðurinn skallar út í teiginn. Hann verður að koma boltanum frá,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, sem hrósaði þó Adam Lallana sem skoraði sigurmarkið. „Hann er virkilega góður leikmaður og áræðinn. Hann var einn af betri leikmönnum Liverpool í þessum leik. Fram á við er Liverpool fínt lið. Það er í vandræðum í vörninni þar sem markverðinum er alltaf kennt um.“ „Kolo Touré var góður á sínum tíma. Hann getur hjálpað til í einum og einum leik en þarna eru þeir ekki að dekka og ekki að elta. Sakho leyfir sóknarmanninum að láta boltann skoppa í teignum.“ Arnar Gunnlaugsson hefur, eins og aðrir, áhyggjur af varnarleik Liverpool í föstum leikatriðum. „Mótherjar Liverpool eru farnir að skynja ótta í hverju einasta fasta leikatriði. Það var enginn leikmaður Liverpool tilbúinn að ráðast á boltann og taka ábyrgð í þessum föstu leikatriðum,“ sagði hann. „Ég held það sé óþægilegt fyrir liðið að vera með Mignolet í markinu. Við tölum oft um að hann sé góður á milli stanganna, en hans óöryggi í föstum leikatriðum er ekki að hjálpa leikmönnum Liverpool.“ Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Messan: Íslendingar létu Van Gaal heyra það í stúkunni á Old Trafford Hjörvar Hafliðason og sérfræðingar í Messunni fór yfir frammistöðu Manchester United liðsins en liðið tapaði á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. 27. janúar 2016 12:30 Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira
Messan: Íslendingar létu Van Gaal heyra það í stúkunni á Old Trafford Hjörvar Hafliðason og sérfræðingar í Messunni fór yfir frammistöðu Manchester United liðsins en liðið tapaði á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. 27. janúar 2016 12:30