Rooney skoraði sigurmarkið gegn Swansea | Sjáðu markið hjá Gylfa Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. janúar 2016 17:00
Wayne Rooney skoraði sjaldséð deildarmark í 2-1 sigri Manchester United á Swansea í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta var fyrsta mark hans í ensku úrvalsdeildinni frá því í október. Gylfi Þór Sigurðsson var að vanda í byrjunarliði Swansea sem var taplaust í síðustu þremur leikjum fyrir leik dagsins. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur og var staðan markalaus í hálfleik en heimamenn í Manchester United voru ekki lengi að láta til sín taka í seinni hálfleik. Á upphafsmínútum seinni hálfleiks kom Anthony Martial, Manchester United yfir með snyrtilegu skallamarki eftir fyrirgjöf Ashley Young. Gylfi jafnaði metin tuttugu mínútum fyrir leikslok með skalla sem David De Gea í marki Manchester United réði ekki við en leikmenn Manchester United voru snöggir að svara. Aðeins sjö mínútum síðar kom Wayne Rooney Manchester United aftur yfir eftir góðan undirbúning Martial en það reyndist vera sigurmark leiksins. Swansea fékk færi til þess að jafna metin aftur og komst Lukasz Fabianski, markvörður liðsins, hvað næst því en skalli hans fór hárfínt framhjá á lokasekúndum leiksins. Með sigrinum skaust Manchester United aftur upp í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum á eftir Tottenham sem eiga leik til góða gegn Everton á mánudaginn.Gylfi jafnar metin: Rooney kemur Manchester United aftur yfir:
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira