Bjartsýnn á að Færeyingar fái fullt sjálfstæði Nadine Guðrún Yaghi skrifar 10. september 2016 20:00 Þjóðveldisflokkurinn hefur lengi barist fyrir sjálfstæði Færeyinga og hefur Högni farið í fremstur í þeirri baráttu.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá fer fram í Færeyjum á næsta ári. Högni Höydal, sjávarútvegsráðherra eyjanna, er bjartsýnn á að Færeyingar fái fullt sjálfstæði innan sex til átta ára. Þrír ráðherrar úr færeysku landsstjórninni eru nú í heimsókn á Íslandi. Högni Höydal sjávarútvegsráðherra, Kirstína Háfoss fjármálaráðherra og Sirið Stenberg velferðarráðherra fóru yfir stefnu og markmið færeysku landsstjórnarinnar á ráðstefnunni í dag. Högni segir tilraunarverkefni með að bjóða út úthafsveiðiheimildir hafi tekist vel. „Nýtt fiskveiðistjórnarkerfi kemur eftir 1. janúar 2018 og ég er sannfærður um það að samningar fáist um það að við förum frá því að gefa út kvótan í það að bjóða út kvótann,“ segir Högni. Ráðherrarnir eru allir úr Þjóðveldisflokknum en markmið landsstjórnarinnar er að tryggja að arðurinn af auðlindunum komi öllu samfélaginu að gagni. Þá kynntu ráðherrarnir breytingar á skattkerfinu til aukins jöfnuðar. Fyrstu breytingarnar sem við tókum upp fólust í því að fara úr flötum skatti í þrepaskipt skattakerfi. Það varð til þess að skattar lág- og millitekjufólks lækkuðu,“ segir Kristina. Þjóðveldisflokkurinn hefur lengi barist fyrir sjálfstæði Færeyinga og hefur Högni farið í fremstur í þeirri baráttu. „Við erum sammála um það að á næsta ári verður þjóðaratkvæði um nýja færeyska stjórnarskrá og þar verði öll völdin hjá færeysku þjóðinni. Ég er sannfærður um það að sjálfstæðisbaráttan vinnist,“ segir Högni og bætir við að ef allt gangi vel gætu Færeyingar orðið sjálfstæðir innan sex til átta ára. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segist vilja læra af systurflokki sínum varðandi uppboðsleiðina. „Við höfum hingað til verið með tillögur sem byggja á blandaðri leið þar sem uppboð hefur verið einn hluti af þeirri leið. Við viljum núna læra af reynslu systurflokki okkar í Færeyjum og sjá hvernig þessi aðferð er að nýtast til að ná þessum markmiðum,“ segir Katrín.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira