Aumingjalegur þjófur brýst inn til boxara Jakob Bjarnar skrifar 23. maí 2016 11:33 Innbrotsþjófurinn er, samkvæmt lýsingu Hilmis, Mjög grannur og aumingjalegur, snöggklipptur, tæplega 1,80 á hæð, um 30 ára og með slatta af tattoo-um á höndunum.
Hilmir Hjálmarsson, bakarameistari og boxari, varð fyrir því að brotist var inn í íbúð hans í gærkvöldi og var tveimur apple-tölvum stolið: „Mac book pro og Mac book air“. Hilmir auglýsir eftir tölvum sínum á Facebooksíðu sinni, aldrei sé að vita nema þær skjóti upp kollinum á sölusíðum á netinu og jafnvel að einhver sem reki augu í skilaboðin þekki til í undirheimunum. Þá beinir Hilmir tali sínu af innbrotsþjófinum og er umbúðalaus í tali. „Ég get borið kennsl a manninn þar sem hann kom líklega i seinni ferð innum ólæsta hurðina sem hann hefur tekið úr lás og ég ekki tekið eftir því þegar ég kom heim! Ég gat ekki elt hann strax þar sem ég var svo heppinn að vera skipta um föt (á helvítis typpinu) eina sem hann var með þá í hendinni voru skæri sem hann notaði að ógna mér en ég náði að loka herbergishurðinni eftir að hann reyndi eða þóttist reyna komast inn um til að hægja á mér!“ segir Hilmir.Innbrotsþjófurinn ógnaði Hilmi með skærum og var svo stálheppinn að bakarinn var ber og því ekki í vígahug.Arnold BjörnssonOg það verður að segjast að innbrotsþjófurinn hefur verið býsna brattur því Hilmir er einkaþjálfari hjá Hnefaleikamiðstöðinni og vel á sig kominn eftir því. Og hann er reiður vegna þeirra óheppilegu aðstæðna að hafa ekki verið í fötum til að takast á við manninn. Sem hann lýsir svo: „Mjög grannur (aumingjalegur), snöggklipptur, tæplega 1,80 á hæð, um 30 ára og með slatta af tattoo-um á höndunum!“ segir Hilmar og hvetur menn til að deila færslu sinni á Facebook, ef það kynni að verða til þess að þessi þjófur komi í leitirnar: „Ef ég hefði vitað að hann væri búinn að koma og taka tölvunar okkar hefði ég ekki látið það trufla mig að ég var ber að neðan.“
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjá meira