Allt að helmingur meðlagsgreiðenda á vanskilaskrá Sæunn Gísladóttir skrifar 5. júlí 2016 10:38 Fjöldi meðlagsgreiðenda á vanskilaskrá vegna skulda við Innheimtustofnun nemur nú þrjátíu prósent. Vísir/Vilhelm
Samtök umgengnisforeldra áætla að allt að fimmtíu prósent meðlagsgreiðenda séu á vanskilaskrá. Framkvæmdastjóri Samtaka umgengnisforeldra segist efins um tillögur innanríkisráðherra að frumvarpi um skipta búsetu barna sem lagt verður fyrir þingið í haust. Samtök umgengnisforeldra og Félag um foreldrajafnrétti fagna því að húsnæðisbótum verði nú skipt milli foreldra.Gunnar Kristinn Þórðarson. Mynd/Gunnar Kristinn ÞórðarsonSamkvæmt nýjum upplýsingum frá Creditinfo hefur fjöldi meðlagsgreiðenda á vanskilaskrá vegna skulda við Innheimtustofnun fjölgað og nemur nú þrjátíu prósent. Ef fjöldi meðlagsgreiðenda sem er á vanskilaskrá vegna skulda við einkaaðila er sá sami og árið 2012 má gera ráð fyrir að fjöldi meðlagsgreiðenda á vanskilaskrá sé kominn yfir fimmtíu prósent. „Það er margt sem veldur þessu. Það er meðal annars aukin þátttaka feðra í uppeldi barna. Árið 2008 var fjórðungur nýskilinna með helmings umgengni og má áætla að það hlutfall hafi aukist talsvert. Síðan eru það meðlög sem eru íþyngjandi þar sem þau eru greidd eftir skatta," segir Gunnar Kristinn Þórðarson, framkvæmdastjóri Samtaka umgengnisforeldra. Gunnar segir stórt skref tekið í nýjum húsnæðisbótalögum. „Við erum hins vegar efins um tillögur innanríkisráðherra því lögheimilisforeldri verður að samþykkja breytingarnar. Þó það sé vissulega einhver réttarbót í þeim fyrir þá foreldra sem eru með gott samkomulag þykir okkur óraunhæft og ómaklegt að annað foreldrið afsali sér lögbundnum réttindum. Ef skilnaðarforeldrar vilja skipta öllu jöfnu þá þurfa þeir ekki svona lög. Við viljum frekar sjá danska fyrirkomulagið þar sem skattaafsláttur er gefinn með hverju greiddu meðlagi."
Tengdar fréttir Umgengnisforeldrar fá húsnæðisbætur Áður hafa einungis lögheimilisforeldrar fengið húsnæðisbæturnar, óháð umgengni barnsins við hitt foreldrið. 30. júní 2016 14:18 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira
Umgengnisforeldrar fá húsnæðisbætur Áður hafa einungis lögheimilisforeldrar fengið húsnæðisbæturnar, óháð umgengni barnsins við hitt foreldrið. 30. júní 2016 14:18