Sheringham fór í dulargervi að horfa á liðið sem rak hann spila Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. febrúar 2016 11:30 Teddy Sheringham entist ekki lengi hjá Stevenage. vísir/getty
Teddy Sheringham, sem var rekinn úr knattspyrnustjórastöðu D-deildarliðsins Stevenage 1. febrúar, fór á völlinn í dulargervi nokkrum dögum síðar til að sjá sína gömlu lærisveina spila. Sheringham, sem gerði garðinn frægan með Tottenham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á árum áður, var rekinn frá Stevenage eftir að vinna ekki í átta leikjum í röð. Í heildina vann Sheringham aðeins sjö af þeim 33 leikjum sem hann stýrði liðinu en þessi fyrrverandi landsliðsframherji Englands entist aðeins átta mánuði í starfi hjá Stevenage. „Ég var rekinn á mánudegi og Stevenage átti leik á heimavelli laugardaginn eftir það. Ég vildi sjá hvernig leikmennirnir myndu bregðast við brottrekstrinum.“ segir Sheringham í viðtali við Sky Sports. „Ég fór í dulargervi. Við getum orðað það þannig. Ég vildi bara sjá hvernig leikmenn og stuðningsmenn myndu bregðast við þessu og finna andrúmsloftið á staðnum.“ „Ég hef áhyggjur af Stevenage. Ég vil ekki að liðið falli. Mest langaði mig að vita hvort þetta væri allt saman mér að kenna og hvort liðið væri betra án mín,“ segir Sheringham. Stevenage tapaði umræddum leik gegn Crawley en vann svo Hartlepool í gærkvöldi og er ellefu stigum frá fallsæti. Sheringham áttar sig á að orðspor sitt sem knattspyrnustjóri er ekki í hæstu hæðum eftir aðeins átta mánuði í starfi hjá Stevenage. „Ef ég get ekki staðið mig hjá Stevenage í D-deildinni hver ætlar þá að ráða mig? Svona hugsaði ég þetta fyrst. En maður lifir og lærir þannig ef ég fæ annað tækifæri geri ég ekki sömu mistök,“ segir Teddy Sheringham.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira