Bjóða upp á heimanámsaðstoð fyrir fullorðna innflytjendur: „Frábær leið til að tengjast samfélaginu betur“ Atli Ísleifsson skrifar 28. nóvember 2016 13:00 Kristín segir að Heilahristingur sé samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Rauða krossins og hafi verið í gangi fyrir börn og unglinga í heil átta ár. Mynd/Kristín R. Vilhjálmsdóttir „
Þetta getur verið mjög góð viðbót fyrir fólk. Ekki bara upp á íslenskunámið heldur líka til að tengjast samfélaginu betur,“ segir Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnisstjóri fjölmenningar hjá Borgarbókasafninu, um verkefnið Heilahristing sem gengur út á aðstoð við heimanám fyrir framhaldskólanemendur og fullorðna, jafnt Íslendinga sem fólk af erlendum uppruna. Kristín segir að Heilahristingur sé samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Rauða krossins og hafi verið í gangi fyrir börn og unglinga í heil átta ár. Nú verði hins vegar einnig boðið upp á þjónustuna fyrir framhaldsskólanemendur og fullorðna. „Það eru mjög mörg börn og unglingar, örugglega milli fimmtíu og sextíu, sem nýta sér þessa þjónustu í hverri viku,“ segir Kristín, en boðið hefur verið upp á aðstoðina í Kringlusafni, Gerðubergi og Grófinni. Aðstoðin fyrir fullorðna, sem nú verður hleypt af stokkunum, verður á fimmtudögum milli 16 og 18 í Grófinni. Þar munu sjálfboðaliðar Rauða krossins taka á móti þeim sem hafa áhuga. „Þarna verður setið í þessu óformlega og notalega umhverfi Borgarbókasafnsins og tækifæri fæst til að spjalla með fólk á íslensku.“ Hún segir hafa við mikla eftirspurn eftir því að boðið yrði upp á þjónustu sem þessa fyrir fullorðna. „Með þessu viljum við gefa fólki tækifæri til að tengjast, kynnast nýju fólki. Á bókasöfnunum og menningarhúsunum okkar er margt um að vera og fjölmenningarlegt starf þar sem við erum að nota menningu og listir til að tengja fólk.“ Nánar má fræðast um verkefnið á vef Borgarbókasafnsins.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Sjá meira