Segir verkfall BHM geta dregist á langinn Heimir Már Pétursson skrifar 19. apríl 2015 15:30 Gylfi Dalmann Aðalsteinsson segir aðstæður um margt ólíkar nú og áður en þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir á sínum tíma. Vísir/Anton
Sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum telur að verkfall opinberra starfsmanna geti dregist á langinn. Staðan á vinnumarkaði nú sé mjög flókin og ríkisstjórnin hafi gripið til ýmissa aðgerða við gerð síðustu fjárlaga, sem á undanförnum áratugum hafi ekki verið gert nema í tengslum við gerð kjarasamninga. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, er sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum. Í þættinum Sprengisandi hjá Fanneyju Birnu Jónsdóttur á Bylgjunni í morgun sagði hann margt í dag minna á ástandið eins og það var í aðdraganda þjóðarsáttarsamninganna árið 1990. „Reyndar voru aðstæður þá talsvert öðruvísi varðandi verðbólguna. En það er svo sannarlega flókin staða uppi á vinnumarkaði,“ sagði Gylfi. Þegar þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir hafði hins vegar verið óðaverðbólga í landinu um nokkurra ára skeið sem menn vildu vinna á með þjóðarsáttarsamningunum, en nú vilji menn koma í veg fyrir að verðbólgan fari á skrið. „Þá höfðu menn reynslu af því fyrir þjóðarsáttarsamningana að kjarasamningar voru gerðir til mjög stutts tíma. Ég hef skoðað lengd kjarasamninga fyrir þjóðarsáttarsamningana. Þá voru meðalkjarasamningar gerðir til þrettán mánaða. En eftir að þjóðarsáttarsamningarnir eru gerðir eru kjarasamningar gerðir til 38 mánaða,“ segir Gylfi. Skammtíma samningar eru yfirleitt gerðir þegar lítið traust ríkir á milli aðila á vinnumarkaðnum og stjórnvalda. En í desember 2013 voru gerðir samningar sem hugsaðir voru sem aðfararsamningar að lengri kjarasamningum síðast liðið haust. Sú hugmyndafræði hrundi þegar ýmsir hópar eins og flugmenn, læknar og kennarar gerðu kjarasamninga með mun meiri launahækkunum en desembersamningarnir fólu í sér. Gylfi Dalmann segir ríkisstjórnina hafa gripið til ýmissa aðgerða við gerð síðustu fjárlaga sem alla jafna hafi ekki verið gert á undanförnum áratugum nema í tengslum við kjarasamninga. „Og hugsanlega hefði það getað verið einhver útfærsla eða leið í lausn kjarasamninga. En menn ákváðu bara að gera það á undan. Við sáum að í þjóðarsáttarsamningunum var þetta allt gert samhliða kjarasamningum sem þá voru gerðir. Þannig að þá kemur ríkisvaldið með einhvers konar útfærslu. Við erum náttúrlega með þennan launamun og allt öðruvísi umhverfi opinberra starfsmanna, af því þeir eru í verkfalli núna og ég á ekki endilega von á því að þessar kjaradeilur opinberra starfsmanna leysis fljótlega,“ segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson.
Tengdar fréttir Hvers vegna eru laun á Íslandi lág? Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, segir launakröfur verkalýðshreyfingarinnar muni ekki skapa aukinn kaupmátt. 18. apríl 2015 15:54 Forgangsröðun og fjármögnun nýs spítala Fáir læknar tjáðu sig um vinnuaðstöðu og tækjakost á LSH fyrir verkfall. Fyrst í lok janúar birtist grein í Mbl. eftir Stefán A. Matthíasson lækni, sem sagði að í stað byggingar sjúkrahótels væri fjármunum betur varið til kaupa á tækjum, sem bráðvantar. 15. apríl 2015 07:00 Kjúklinga- og svínaræktun í hættu vegna verkfallsaðgerða Verkfall dýralækna getur stórskaðað kjúklinga- og svínaframleiðslu. Stórvandamál á nokkrum dögum, segir formaður Bændasamtakanna. Verður að huga að velferð dýranna, segir framleiðandi. Enginn kjötinnflutningur. 17. apríl 2015 08:00 Verkfall á Akranesi mun ná til 116 fyrirtækja Kosning um verkfall félagsmanna í Verkalýðsfélagi Akraness hófst í morgun. 13. apríl 2015 13:53 Félag atvinnurekenda: Ráðuneytið gefi út opinn tollkvóta vegna yfirvofandi kjötskorts Félag atvinnurekenda hefur sent atvinnuvegaráðuneytinu erindi og farið fram á að ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarafurða verði kölluð saman. 14. apríl 2015 10:59 Afleitt að ekki sé samningafundur um helgina Formaður Bandalags háskólamanna gagnrýnir að enginn samningafundur sé fyrirhugaður í kjaradeilu BHM og ríkisins um helgina. Mikið ber enn í milli og lítið sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt. Tæpur hálfur mánuður er nú síðan að verkfallsaðgerðir BHM hófust. 18. apríl 2015 12:29 Segir áhrif verkfalla á spítalann vera umtalsverð Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir verkefnum vera forgangsraðað eftir bráðleika. 15. apríl 2015 17:28 Lýsa yfir þungum áhyggjum af stöðu mála á Landspítalanum "Það ástand getur klárlega skapað ógn við öryggi sjúklinga“ 13. apríl 2015 18:36 Velta því fyrir sér hvort Sigmundur og Bjarni séu enn í páskafríi Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja það sæta furðu að bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skuli vera fjarverandi á fyrsta þingfundi Alþingis eftir tveggja vikna páskaleyfi. 13. apríl 2015 16:24 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira
Hvers vegna eru laun á Íslandi lág? Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, segir launakröfur verkalýðshreyfingarinnar muni ekki skapa aukinn kaupmátt. 18. apríl 2015 15:54
Forgangsröðun og fjármögnun nýs spítala Fáir læknar tjáðu sig um vinnuaðstöðu og tækjakost á LSH fyrir verkfall. Fyrst í lok janúar birtist grein í Mbl. eftir Stefán A. Matthíasson lækni, sem sagði að í stað byggingar sjúkrahótels væri fjármunum betur varið til kaupa á tækjum, sem bráðvantar. 15. apríl 2015 07:00
Kjúklinga- og svínaræktun í hættu vegna verkfallsaðgerða Verkfall dýralækna getur stórskaðað kjúklinga- og svínaframleiðslu. Stórvandamál á nokkrum dögum, segir formaður Bændasamtakanna. Verður að huga að velferð dýranna, segir framleiðandi. Enginn kjötinnflutningur. 17. apríl 2015 08:00
Verkfall á Akranesi mun ná til 116 fyrirtækja Kosning um verkfall félagsmanna í Verkalýðsfélagi Akraness hófst í morgun. 13. apríl 2015 13:53
Félag atvinnurekenda: Ráðuneytið gefi út opinn tollkvóta vegna yfirvofandi kjötskorts Félag atvinnurekenda hefur sent atvinnuvegaráðuneytinu erindi og farið fram á að ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarafurða verði kölluð saman. 14. apríl 2015 10:59
Afleitt að ekki sé samningafundur um helgina Formaður Bandalags háskólamanna gagnrýnir að enginn samningafundur sé fyrirhugaður í kjaradeilu BHM og ríkisins um helgina. Mikið ber enn í milli og lítið sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt. Tæpur hálfur mánuður er nú síðan að verkfallsaðgerðir BHM hófust. 18. apríl 2015 12:29
Segir áhrif verkfalla á spítalann vera umtalsverð Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir verkefnum vera forgangsraðað eftir bráðleika. 15. apríl 2015 17:28
Lýsa yfir þungum áhyggjum af stöðu mála á Landspítalanum "Það ástand getur klárlega skapað ógn við öryggi sjúklinga“ 13. apríl 2015 18:36
Velta því fyrir sér hvort Sigmundur og Bjarni séu enn í páskafríi Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja það sæta furðu að bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skuli vera fjarverandi á fyrsta þingfundi Alþingis eftir tveggja vikna páskaleyfi. 13. apríl 2015 16:24