Hætta á nýju skeiði víxlverkana launa og verðlags Heimir Már Pétursson skrifar 19. apríl 2015 18:45 vísir/anton
Sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum segir hættu á að Íslendingar séu að sigla inn í nýtt skeið víxlhækkandi verðlags og launa. Ríkisstjórnin hafi gripið til ýmissa aðgerða við gerð síðustu fjárlaga, sem áratuga hefð sé fyrir að ekki sé gert án samráðs við aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga. Í á annan áratug á árunum fyrir gerð þjóðarsáttarsamninganna árið 1990 var mikið um vinnudeilur og laun og verðlag hækkuðu á víxl þannig að verðbólga fór úr böndunum. Öllum var ljóst að þetta ástand gat ekki haldið áfram sem varð til þess að hreyfingar launafólks, atvinnurekenda, bænda og ríkis gerðu með sér samkomulag til að vinna bug á verðbólgunni og svo kölluð þjóðarsátt varð til. „Það eru ýmis teikn á lofti og viss hætta á því að við missum þessa hluti úr böndunum. Það er mjög mikilvægt að við lærum af reynslunni og skoðum nákvæmlega hvað gerðist þá, þessi víxlverkun luna og verðbólgu. En líka það sem við lærðum af þjóðarsáttarsamningunum 1990. Ég held að það skipti mjög miklu máli að aðilar vinnumarkaðarins, opinberi markaðurinn og almenni vinnumarkaðurinn og ríkisstjórnin reyni að móta nýja þjóðarsátt með einhverjum hætti,“ segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent í viðskptafræðideild Háskóla Íslands, sem er sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum. Mikil þykkja ríkir milli verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins um þessar mundir og sameignlega ríkir mikil óánægja innan beggja hreyfinga með aðgerðir ríkisstjórnarinnar á sumum sviðum og aðgerðarleysi hennar á öðrum sviðum. Andi nýrrar þjóðarsáttar svífur því ekki beinlínis yfir vötnunum. „Það skiptir miklu máli þá að ríkisvaldið sé tilbúið eins og það var þá, að koma meira að borðinu, með meira afgerandi hætti og opinberi- og almenni vinnumarkaðurinn séu tilbúnir til að fara saman í nýja þjóðarsátt,“ segir Gylfi. Á undanförnum fimmtíu árum hafi þróast visst samráð milli aðila vinnumarkaðrins og ríkisvaldsins sem gefið hafi út yfirlýsingar um ýmsar aðgerðir í tengslum við samninga. „Forsætisráðherra hefur talað um stöðugleikasamninga, þeir séu tilbúnir til að gera slíkt þegar kjarasamningar liggja fyrir. En þeir verða bara að koma fyrr að borðinu,“ segir Gylfi. Nú sé veruleg hætta á nýju tímabili með víxlhækkunum verðlags og launa sem erfitt gæti reynst að vinna sig út úr. „Ég tel svo vera. Við munum sjá kjarasamninga gerða til stutts tíma og kjaradeilur og verkföll hugsanlega fyrirsjáanleg.“Þannig að það er veruleg hætta á því að við séum að fara inn í mikið óstöðugleikatímabil? „Já, reynslan sýnir okkur það,“ segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Sjá meira