Radarvari og Bændablaðið staðalbúnaður forsætisráðherra Jakob Bjarnar skrifar 31. ágúst 2015 10:33 Bíll forsætisráðherra er búinn radarvara, þannig að bílstjóri getur dregið úr hraða áður en hann lendir í hraðamælingum lögreglunnar. visir/sveinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var nýverið staddur á Siglufirði til að huga að aðstæðum eftir mikil flóð sem þar voru. Það vakti athygli tíðindamanns Vísis að á mælaborði forsætisráðherrabílsins, sem er svartur Land Cruiser, mátti sjá Bændablaðið; en svo virðist sem það sé helsta lesefni forsætisráðherra á ferðum hans um landið. Að minnsta kosti að þessu sinni. En, einnig má sjá, ef myndin er skoðuð, að meðal búnaðar forsætisráðherrabílsins er radarvari. Radarvari þjónar þeim helst þeim tilgangi að gefa bílstjóra til kynna hvar lögreglan er með hraðamælingar, og getur þá bílsstjóri dregið úr hraða sínum, sé hann yfir hámarkshraða, svo hann verði ekki gripinn við ólöglega iðju sína. Og ber sannast sagna ekki vitni um mikla virðingu fyrir þeim lögum sem kveða á um hámarkshraða á þjóðvegum landsins. Sigmundur Davíð hefur reyndar verið gripinn af lögreglu, vegna hraðaksturs eins og frægt er, en það var í maí árið 2013. Þá var hann að koma af blaðamannafundi sem haldinn var á Laugarvatni til að kynna nýjan stjórnarsáttmála. Þá var aðstoðarmaður hans, Jóhannes Þór Skúlason, undir stýri og var bíllinn á 106 kílómetra hraða.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Sjá meira