Höfða bótamál gegn íslenska ríkinu vegna tafa á rannsókn fjársvikamáls Nadine Guðrún Yaghi skrifar 23. desember 2015 07:00 Í dómi Hæstaréttar segir að drátturinn sé vítaverður og í hróplegu ósamræmi við lög um meðferð sakamála, stjórnarskrána og mannréttindasáttmála Evrópu. vísir/gva
Fjárhaldsmaður Guðjóns Árna Konráðssonar, þroskaskerts manns, hefur ákveðið að stefna íslenska ríkinu og Landsbanka Íslands vegna gríðarlegra tafa á rannsókn fjársvikamáls þar sem milljónir voru sviknar af manninum. Þetta staðfestir lögmaður mannsins. „Við erum að tala um miklu miklu meiri upphæð en dómurinn dæmdi Guðjóni. Maðurinn hafði klárlega af honum yfir 10 milljónir. Málið endaði svona vegna dráttar hjá lögreglunni,“ segir Jóna Ósk Konráðsdóttir, systir Guðjóns Árna, sem hefur séð um málið fyrir hans hönd ásamt eiginmanni sínum.Jóna Ósk KonráðsdóttirMálið var kært til lögreglu í október 2007. Ákæra var hins vegar ekki gefin út fyrr en í júní árið 2013. Hæstiréttur dæmdi nýlega karlmann í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft rúmlega tvær og hálfa milljón af Guðjóni. Þá fyrir að hafa blekkt starfsmenn Sparisjóðsins í Keflavík til að millifæra peninga af reikningi Guðjóns. Peningana notaði hann að mestu leyti í eigin þágu. Dómurinn ákvað að skilorðsbinda dóminn vegna þess hversu lengi málið dróst. „Í dómi Hæstaréttar segir að drátturinn sé vítaverður og í hróplegu ósamræmi við lög um meðferð sakamála, stjórnarskrána og mannréttindasáttmála Evrópu.“ Jónu þykir skelfilegt að kerfið skuli virka þannig að illa sé farið með fólk sem minna má sín. „Í þessu tölulega umhverfi er hann bróðir minn með þroska á við tíu ára barn. Ég hef barist í þessu máli í átta ár og ætla ekki að fara gefast upp núna,“ segir Jóna um skaðabótamálið sem höfðað verður á hendur íslenska ríkinu á næstunni.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira