Borgarstjóri setti Sri Chinmoy hlaupið við Tjörnina Bjarki Ármannsson skrifar 1. júlí 2015 10:41 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri með Friðarkyndilinn. Vísir/GVA
Sri Chinmoy heimseiningar Friðarhlaupið hófst í dag með opnunarathöfn við Tjörnina í Reykjavík. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setti hlaupið við friðartré Reykjavíkurborgar, sem gróðursett var árið 2013. Hlaupið mun standa yfir til 24. júlí og mun tólf manna hópur hlaupa á milli byggða með logandi kyndil. Sá kyndill kallast Friðarkyndillinn og var kveikt á honum í ísgöngunum í Langjökli á mánudag. Hlaupið fer ekki aðeins fram á Íslandi, heldur í um hundrað löndum, og mun tilgangur þess vera að efla frið, vináttu og skilning manna og menningarheima á milli. Hlaupið var fyrst haldið árið 1987 og hefur Ísland verið með frá upphafi. Við opnunarathöfnina var meðal annars haldin friðarstund og kyndillinn látinn ganga manna á milli, þar á meðal fulltrúa allra heimsálfanna í táknrænni athöfn. Sri Chinmoy, stofnandi hlaupsins, var indverskur tónlistarmaður, gúrú og kraftlyftingamaður sem lést árið 2007. Hann nýtur talsverðra vinsælda hér á landi og fyrir stuttu óskaði Sri Chinmoy-miðstöðin eftir því að fá að reisa þrettán metra háa styttu af gúrunum við Esjurætur.Dagur hljóp táknrænan hring ásamt alþjóðlega Friðarhlaupsliðinu, krökkum af leikskólanum Tjarnarborg og stúlkum úr 4. flokki Vals.Vísir/GVA
Mest lesið Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Um fimm þúsund börn glíma við offitu á Íslandi Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira