Innlent

Kvótaflóttamenn frekar fjölskyldufólk

Snærós Sindradóttir skrifar
Ólöf Nordal innanríkisráðherra.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Vísir/Snærós
Ólöf Nordal innanríkisráðherra fékk fjölmargar fyrirspurnir frá almennum flokksfélögum í Sjálfstæðisflokknum í fyrirspurnartíma á landsfundi nú fyrir stuttu.

Hún var meðal annars spurð um samsetningu þess hóps flóttafólks sem væntanlegur er til landsins. Fyrirspurnin sneri að því að Íslendingar væru kristin þjóð og kristnir væru „brytjaðir niður“ í mörgum þeim löndum sem flóttafólk kæmi frá. Sá sem beindi orðum sínum til Ólafar lagði áherslu á að hingað kæmi fjölskyldufólk.

Þessu svaraði Ólöf: „Við erum að taka á móti þessum fyrsta hluta kvótaflóttamanna innan tíðar. Það er hópur af flóttamönnum frá Sýrlandi.Það fólk mun koma frá flóttamannabúðum væntanlega í Líbanon.“

Varðandi samsetningu hópsins á ég nú frekar von á því að þetta verði fjölskyldufólk. Við getum að vissu leyti haft áhrif á það hverjir koma, upp að vissu mark,i en meginstefið hlýtur að vera það að við erum að hjálpa fólki sem er í mikilli neyð. Ég er viss um það að þetta fólk vill vera heima hjá sér, það vill enginn vera á vergangi. Við gerum það sem við getum til að hjálpa. Ég á frekar von á því að þetta verði fjölskyldufólk sem kemur.“

Þá var hún spurð um álit sitt á afglæpavæðingu á fíkniefnum og svaraði því á þá leið að það þyrfti að svara því hvaða hópur væri í neyslu. Hvort um væri að ræða heilbrigðismál frekar en glæpastarfsemi. Hún vill fá svör við því hvort refsistefna sé að ná markmiðum sínum. Ólöf þakkaði Ungum sjálfstæðismönnum fyrir að setja málið á dagskrá og tók fram að hún vildi gjarnan ná í gegn frumvarpi Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um áfengissölu í almennum verslunum.

Aðrar spurningar sneru meðal annars að lögheimilislögum barna og þeirri skekkju sem ríkir á milli lögheimilisforeldris og umgengisforeldris. Ólöf sagði breytingar fyrirhugaðar á lögheimilislögunum með því markmiði að jafna stöðu foreldra að þessu leyti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×