Myndbirtingin kom talsvert á óvart Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. júní 2015 12:00 Ingi segir forsíðumyndina vera mikla hvatningu fyrir sig persónulega og sem ljósmyndara. Mynd/Ingi
Inga Árnasyni, sjálfstætt starfandi ljósmyndara í Kaupmannahöfn, brá í brún þegar rigna tók yfir hann textaskilaboðum með hamingjuóskum vegna ljósmyndar eftir hann sem prýddi forsíðu menningarhluta danska dagblaðsins Politiken á dögunum. „Það er ljósmyndahátíð í gangi hér í tíu daga og það eru fleiri en þúsund myndir á sýningunni en ég komst í þeirra eigin ritskoðuðu sýningu sem þeir sjálfir halda,“ segir Ingi ánægður en sýningin sem um ræðir er Copenhagen Photo Festival og önnur af myndunum sem Ingi sendi inn í keppnina rataði líkt og áður sagði á forsíðu menningarhluta Politiken. Samkvæmt dreifingartölum frá árinu 2013 er dreift til 88.597 manns og hafði 800.000 mánaðarnotendur að vefsíðu sinni og því myndbirting í blaðinu talsverður áfangi. „Ég var bara heppin, ég veit ekki af hverju þeir völdu mína mynd úr þessum þúsundum mynda,“ segir hann hógvær. „Þetta er náttúrulega mikil hvatning fyrir mig, bæði persónulega og hvað frama snertir,“ segir hann glaður og bætir við: „Það er alltaf gott að fá klapp á bakið í þessum bransa þegar maður er að vinna sjálfstætt.“ Sjálfur hafði Ingi ekki hugmynd um myndbirtinguna. „Ég fór bara í bakaríið og keypti blaðið, var ekki einu sinni búinn að opna það þegar ég fékk sms og svo komu bara fleiri og fleiri. Maður var ekki einu sinni að leiða hugann að möguleikanum,“ segir Ingi sem var að borða morgunmat með konu sinni og börnum í rólegheitunum þegar fregnirnar bárust.Myndin sem prýddi forsíðu menningarhluta Politiken en hún var tekin í Noregi.Vísir/IngiIngi hefur verið sjálfstætt starfandi í Danmörku frá því í desember og segir fara vel um sig og fjölskylduna í Kaupmannahöfn. „Ég flutti hingað 2009 og er kominn með börn og konu og það fer vel um mig. Það er gott fyrir ljósmyndara að vera hérna, þetta er stór vettvangur.“ Ingi ferðaðist með fyrirsætuna, Hönnu, til Íslands þar sem hann skaut seríu og landslagsmyndir en forsíðumyndin er tekin í Noregi. „Við fórum skömmu seinna til Íslands og hún var með þegar ég tók landslagsmyndirnar en var bara í bílnum. Það var þokkalega kalt en engu líkt,“ segir hann hress. „Þegar mann vantar innblástur er alltaf gott að koma heim.“ Ingi hefur að eigin sögn mestan áhuga á því að mynda fólk þó hann taki einnig landslagsmyndir. Ljósmyndaáhuginn vaknaði árið 2009 og hélt áfram að vaxa og hann skráði sig í nám sem hann kláraði árið 2011. „Ég er mikið að vinna með myndir af fólki. Vinn mikið með andlit og líkamstjáningu, hvernig fólk kemur fyrir og annað. Mér finnast andlitin og týpurnar mest spennandi,“ segir hann og bætir við að oft þurfi að beita talsverðum sannfæringarkrafti til þess að fá fólk til þess að sitja fyrir. „Ef ég finn einhverja persónu sem mér finnst spennandi þá gefst ég eiginlega ekki upp fyrr en ég fæ að mynda hana. Það var einmitt þannig með Hönnu, það tók alveg ár að fá hana til að leyfa mér að mynda sig. Hún er albínói og fékk að líða svolítið fyrir það en svo á endanum samþykkti hún að vera með,“ segir Ingi og bætir við að þau séu auðvitað bæði ánægð með að hún hafi slegið til. Á heimasíðu Inga má skoða fleiri ljósmyndir eftir hann.
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira