Gleymdi teikningunni á hótelherbergi í Berlín Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. júní 2015 13:00 Sóley er ánægð með viðbrögðin sem platan hefur fengið en hún ákvað að gera hana eins og hún vildi hafa hana. Mynd/IngibjörgBirgisdóttir
Tónlistarkonan Sóley efnir til tónleika í kvöld þar sem hún fagnar útgáfu plötunnar Ask the Deep. Sóley er nýkomin heim úr vel heppnaðri tónleikaferð um Evrópu sem hún segir hafa gengið vel, verið mikla keyrslu, og ágætlega vandræðalausa en að lítið hafi verið sofið. „Það var eitt svolítið fyndið. Þegar ég var í Póllandi og var að labba af sviðinu sé ég að einn gaur stendur og veifar einhverju að mér.“ En Sóley segir það talsvert algengt að aðdáendur komi með gjafir á tónleika, geisladiska eða jafnvel heimagert föndur. „Hann réttir upp risastóra blýantsteiknaða A2-mynd af mér sem hann hafði teiknað sjálfur. Ég tók hana með baksviðs og hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera við hana.“ Sóley segir að staðið hafi til að gefa móður sinni myndina en blýantsteikningin náði því miður ekki heim til Íslands. „Hún gleymdist á hótelherbergi í Berlín. Vonandi hefur einhver sem fann hana hengt hana upp þar,“ segir hún og hlær. Á tónleikaferðinni var Sóley að fylgja eftir sinni annarri breiðskífu, Ask the Deep, sem kom út þann 12. maí síðastliðinn og hefur fengið góða dóma í erlendum miðlum. „Viðbrögðin við plötunni hafa verið jákvæð, sem er gaman. Það er alltaf svolítið erfitt að koma með plötu númer tvö og hún er aðeins öðruvísi en fyrsta platan,“ segir Sóley og bætir við: „Ég gerði hana bara eins og ég vildi hafa hana og ég held að það sé mikilvægt.“ Ask the Deep er dekkri og þyngri plata heldur en hennar síðasta breiðskífa hennar, We Sink, sem kom út árið 2011. Tónleikarnir í kvöld eru fyrstu útgáfutónleikar Sóleyjar hérlendis. „Ég hef aldrei hugsað út í það að halda útgáfutónleika. Ég hef gefið út tvær EP og ein breiðskífu og langaði bara til þess að prófa að halda útgáfutónleika.“Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 í Fríkirkjunni. Miðaverð er 2.500 krónur og hægt er að nálgast miða á midi.is.
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira