Innlent

Ekið á manneskju á reiðhjóli

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ekið var á reiðhjólamanneskju í dag.
Ekið var á reiðhjólamanneskju í dag. Vísir
Ekið var á reiðhjólamann við Breiðholtsbraut um hálf fjögur síðdegis í dag. Viðkomandi var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en ekki er vitað nánar um meiðsli á þessari stundu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þá var rétt eftir hádegi í dag tilkynnt um ökumann sem stöðvaður var grunaður um ölvun við akstur. Sá reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum.

Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í Vesturbæ Reykjavíkur klukkan þrjú í dag. Ekki er vitað hverju stolið var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×