Velferðarvaktin afhenti Eygló tillögu að tilraunaverkefni Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. september 2015 23:55 Ráðherra og formaður Velferðarvaktarinnar. Mynd/Velferðarráðuneytið
Velferðarvaktin hefur lagt til við Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, að ráðist verði í tilraunaverkefni sem miðar að því að styrkja stöðu einstæðra foreldra sem eru notendur fjárhagsaðstoðar með hagsmuni barna þeirra að leiðarljósi. Siv Friðleifsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar gerði ráðherra grein fyrir tillögunni á fundi í velferðarráðuneytinu dag. Þetta kemur fram á vefsíðu velferðarráðuneytisins. „Eygló Harðardóttir segir tillögu Velferðarvaktarinnar falla vel að þeim hugmyndum sem kynntar verða í tillögu til þingsályktunar um fjölskyldustefnu. Verkefnið sé mikilvægt og varði hóp í viðkvæmri stöðu sem þurfi að efla: „Ég vonast til að sveitarfélögin taki vel í samstarf eins og hér er lýst og mun hafa samband við þau hið fyrsta til viðræðu um málið.“ Velferðarvaktin hefur skoðað hvernig efla megi úrræði fyrir einstæða foreldra og börn þeirra. Er það í samræmi við skipunarbréf vaktarinnar þar sem áhersla er lögð á að hún skuli huga að velferð og afkomu efnalítilla barnafjölskyldna, sérstaklega einstæðra foreldra og barna þeirra og afla upplýsinga um aðstæður þeirra sem búa við sára fátækt svo draga megi úr henni. Tilraunaverkefnið sem Velferðarvaktin leggur til að ráðist verði í byggist á niðurstöðu rannsóknar sem Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd gerði í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, að beiðni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Markmiðið var að bera saman efnahagslegar og félagslegar aðstæður reykvískra barnafjölskyldna eftir atvinnustöðu þeirra. Annað markmið var að kanna hvort atvinnustaða foreldra hefur áhrif á þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundaiðkun. Að lokum var markmiðið að kortleggja hindranir foreldra sem fá fjárhagsaðstoð til að nýta sér þjónustu er varðar börn þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna m.a. að börn efnaminni foreldra taka síður þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, eru síður á leikskóla og hafa síður aðgang að félagslegu tengslaneti almennt samanborið við börn efnameiri foreldra,“ segir á síðunni.
Mest lesið Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent Fleiri fréttir Fluttur slasaður frá Selfossi með þyrlu gæslunnar 78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og 1933 í Skógum Fundu loks heitt vatn í Tungudal Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Þakka að ekki fór verr í rútuslysi og hafnfirsk börn þora varla út Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar Segir veginn ekki hafa gefið sig Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Yazan bíður enn svara Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Sjá meira