Öskuskýið veldur íbúum áhyggjum Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. apríl 2015 21:45 Íbúar í Puerto Montt fylgjast með eldsumbrotunum. Vísir/EPA
Tvær miklar sprengingar urðu í eldfjallinu Calbuco í Síle, sú fyrri seinni part miðvikudags en sú seinni snemma í morgun. Með þessu hófst eldgos í fjallinu, sem síðast bærði á sér fyrir 43 árum. Úr fjallinu hefur þeyst gríðarmikið magn af ösku, sem gæti tafið verulega fyrir flugumferð ásamt því að menga vatn og jarðveg í nágrenninu. Einnig má búast við því að andrúmsloftið verði lítt þolanlegt fólki með öndunarfærasjúkdóma. Michelle Bastellet, forseti Síle, lýsti yfir neyðarástandi og byrjað var á því að flytja 4.000 manns burt frá byggðum í næsta nágrenni fjallsins. Íbúar hafa verið hvattir til þess að halda sig inni við. Neyðarráðstafanir hafa einnig verið gerðar í nágrannalandinu Argentínu.Miklar eldingar hafa verið í gosinu.Nordicphotos/AFPAlls eru 90 virk eldfjöll í Síle og eldgos nokkuð algeng. Einungis nokkrar vikur eru frá því síðast gaus þar, en þá hófst eldgos í fjallinu Villarica. Þá þurfti einnig að flytja þúsundir manna brott frá byggðum í nágrenninu. Þrjú þessara eldfjalla þykja hættulegri en önnur og er Calbuco eitt þeirra. Síðast gaus í Calbuco árið 1972 en það var lítið gos. Stærra gos kom úr því árið 1961, en alls hefur fjallið gosið tíu sinnum frá árinu 1837. Í myndbandinu að neðan má sjá öskufall frá gosinu.Cenizas En Junin De Los Andes #FotosChatoPosted by Fotos Chato on Wednesday, April 22, 2015
Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira