Norðmenn langfremstir í rafbílavæðingu Stefán Rafn skrifar 23. apríl 2015 00:01 Forsetinn á rafbíl. Á Íslandi eru um 400 skráðir rafbílar. Fréttablaðið/Haraldur Jónasson
Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið ívilnunaráætlun norskra stjórnvalda grænt ljós um niðurfellingu virðisaukaskatts á rafbíla. Í rökstuðningi eftirlitsstofnunarinnar kemur fram að framlag Noregs til baráttunnar gegn auknum útblæstri gróðurhúsalofttegunda sé til fyrirmyndar og skattalöggjöfin vel til þess fallin að bæta enn betur um. Fjöldi nýskráðra rafbíla í Noregi er hlutfallslega mestur í heiminum eða um 12 prósent en til samanburðar er það hlutfall 0,3 prósent í Evrópusambandinu. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, tekur undir það. „Norðmenn eru langfremstir í rafbílavæðingu bílaflotans. Þar eru langflestir rafbílar á mann og fleiri ívilnanir en annars staðar í heiminum.“ Þó svo að Norðmenn standi sig vel er löggjöf á Íslandi mjög góð hvað varðar hvata til fjárfestingar á rafbílum. Á Íslandi er ekki rukkaður virðisaukaskattur á rafbíla né vörugjöld. Þá greiða notendur heldur engin bifreiðagjöld né stöðumælagjöld. „Á Íslandi eru um 400 skráðir rafbílar sem kann að hljóma lítið en við verðum að hafa í huga að þetta er tiltölulega nýtt fyrirbæri hér á landi,“ segir Özur en hann bætir við að sala á rafbílum sé á uppleið enda séu þeir orðnir samkeppnishæfari en áður. Virðisaukaskattur og vörugjöld á rafbíla voru felld niður á síðasta kjörtímabili en lög um niðurfellingu voru framlengd í desember í fyrra og munu gilda til eins árs.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira