Bandarískir hermenn drápu tvo saklausa gísla Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 23. apríl 2015 15:08 Barack Obama, Bandaríkjaforseti, telur bandarísku þjóðina eiga rétt á að vita af svona málum. V'isir/Getty
Barátta Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum dró tvo saklausa gísla til dauða í janúar. Aðgerðin var hluti af yfirstandandi baráttu Bandaríkjanna gegn al Qaeda.CNN greinir frá því að gíslarnir hafi látist þegar dróni frá Bandaríkjunum skaut á búðir al Qaeda. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag. Sagðist hann taka fulla ábyrgð á atburðunum og baðst afsökunar fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar. Í aðgerðinni dó einnig leiðtogi al Qaeda, Ahmed Farouq, amerískur borgari. Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðust ekki hafa haft neina ástæðu til þess að ætla að gíslarnir væru staðsettir í búðunum sem þeir miðuðu á. Mennirnir sem létust í árásinni hétu Warren Weinstein og Giovanni Lo Porto. Weinstein var amerískur verktaki sem hafði verið í haldi al Qaeda síðan í ágúst árið 2011. Lo Porto var Ítali sem hafði verið í haldi samtakanna síðan árið 2012. Trúnaður ríkti um upplýsingarnar þangað til í dag. Obama sagðist trúa því „að það sé mikilvægt að veita Bandaríkjamönnum eins miklar upplýsingar og hægt er um aðgerðir okkar gegn hryðjuverkum, sérstaklega þegar þær aðgerðir valda dauða samborgara okkar.“
Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Íranir enn vígreifir Erlent Fleiri fréttir Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Sjá meira