Mismunað eftir áhugasviði snærós sindradóttir skrifar 22. júní 2015 07:00 Ný greining á íþróttamálum í Hafnarfirði málar svarta mynd af niðurgreiðslum sveitarfélagsins til barna. vísir/valli „
Þetta niðurgreiðsluform er […] ósanngjarnt og mismunar börnum og unglingum eftir aldri, fjárhagsstöðu foreldra og íþrótta- og tómstundagreinum.“ Þetta segir í nýrri skýrslu um íþróttamál í Hafnarfirði. Skýrslan, sem unnin er af ráðgjafarfyrirtækinu R3, málar svarta mynd af niðurgreiðslum sveitarfélagsins til barna sem iðka íþróttir. Fram kemur meðal annars að börn sem stunda fótbolta, fimleika og fleiri greinar fá hærri niðurgreiðslu en börn sem stunda gólfíþróttir og badminton. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segist búast við því að brugðist verði við vandanum þegar líða tekur á haustið. „Nú setjumst við yfir þessa skýrslu og skoðum hvað við teljum að betur mætti fara,“ segir Haraldur. Lægstu niðurgreiðslu fá börn á aldrinum sex til tólf ára sem æfa gólfíþróttir, badminton og aðrar keimlíkar greinar, eða um 15.300 krónur á ári. Hæstu niðurgreiðsluna fá tólf til sextán ára börn sem æfa fótbolta, fimleika og fleira, eða 30.600 krónur á ári. Hægt er að fá niðurgreiðslu fyrir tvær íþróttagreinar í einu. Þar af leiðir að börn sem æfa tvær íþróttir sem hljóta meiri niðurgreiðslu geta fengið allt að 61.200 krónur á ári. Niðurgreiðslan getur því munað 299 prósentum á milli barna.Í skýrslunni segir að fyrirkomulagið komi niður á börnum sem eiga foreldra sem ekki hafa efni á að greiða mismuninn af tveimur íþróttagreinum, eftir niðurgreiðslu. Þá segir í skýrslunni að sækja verði sérstaklega um niðurgreiðsluna, ólíkt því sem gengur og gerist til dæmis í Reykjavík. Fáir virðist sækja um niðurgreiðsluna og er það mat skýrsluhöfunda að það geti ekki stafað af áhugaleysi foreldra á því að fá tómstundir barna niðurgreiddar. Í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu nær niðurgreiðsla til tómstunda til átján ára aldurs. Þetta á ekki við um kerfið í Hafnarfirði, þar sem börn til sextán ára aldurs fá niðurgreiðslu. Fram kemur í skýrslunni að full ástæða sé til að endurskoða þetta þar sem mikið brottfall verði úr íþróttum á þessum aldri. „Skýrslan er þarna og nú ætlum við bara að horfa fram á veginn og vinna úr því sem þar er lagt til,“ segir Haraldur bæjarstjóri.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira